Talmeinafræðingur - Geðheilsumiðstöð barna

Hefur þú áhuga á að taka þátt í starfi með börnum og unglingum með geð- og þroskavanda ? 

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að talmeinafræðingi til starfa hjá Geðheilsumiðstöð barna. Starfað er í þverfaglegu teymi, við ráðgjöf, greiningu og meðferð barna með geð- og þroskaraskanir. Kennsla og ráðgjöf til annarra fagaðila ásamt vísindastörfum verður einnig mikilvægur hluti af starfinu. 

Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir börn að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu. 

Um er að ræða 100% tímabundið starf í eitt ár. Ráðið er í starfið frá 15. maí n.k. eða eftir nánara samkomulagi. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Talmeinafræðingur starfar í þverfaglegu teymi við greiningu, ráðgjöf og meðferð barna með geð- og þroskavanda. Talmeinafræðingur leggur mat á málþroska, samskiptafærni og aðra færniþætti sem tengjast tali og máli með stöðluðum próf- og matstækjum og klínískum athugunum sem og veitir ráðgjöf og eftirfylgd eftir þörfum. Talmeinafræðingur tekur virkan þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu.

Hæfnikröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sem talmeinafræðingur
  • Þekking og/eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Sérþekking á málþroska barna/unglinga 
  • Sérþekking á málþroskaröskun DLD æskileg
  • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og færni til að starfa í teymi
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram leyfisbréf og staðfestar upplýsingar um menntun ásamt hreinu sakavottorði. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.05.2024

Nánari upplýsingar veitir

Linda Kristmundsdóttir - Linda.Kristmundsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6620

HH Geðheilsumiðstöð barna
Álfabakki 16
109 Reykjavík

Sækja um starf »