Ljósmóðir - Heilsugæslan Miðbæ

Heilsugæslan Miðbær auglýsir eftir ljósmóður til starfa. Um er að ræða 50% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst nk. eða eftir nánara samkomulagi. 

Við leitum að ljósmóður sem er tilbúin að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni á spennandi vettvangi sem er í sífelldri þróun. Ef þú telur þig vera manneskjuna í starfið, hvetjum við þig eindregið til að senda inn umsókn. 

Heilsugæslan Miðbæ leggur áherslu á þverfaglegt samstarf og góða teymisvinnu. Á stöðinni er góður starfsandi og mun ljósmóðir starfa í þverfaglegu teymi með læknum, hjúkrunarfræðingum, sjúkraþjálfara og öðru fagfólki í metnaðarfullu starfsumhverfi. 

 Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið ljósmóður er mæðravernd og leghálsskimanir.

Mæðravernd er í höndum ljósmæðra og heimilislækna á heilsugæslustöðvum og samráð er haft við fæðingarlækna ef þörf er á. Markmið með mæðravernd heilsugæslunnar er m.a. að stuðla að heilbrigði móður og barns, veita stuðning og ráðgjöf, greina áhættuþætti og veita fræðslu um meðgöngu og fæðingu. 

 

Hæfnikröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Starfsleyfi sem ljósmóðir
  • Reynsla sem ljósmóðir á heilsugæslustöð er æskileg
  • Reynsla af leghálsskimunum kostur
  • Reynsla við að nota rafræna mæðraskrá
  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 02.05.2024

Nánari upplýsingar veitir

Hafdís Ólafsdóttir - hafdis.olafsdottir@heilsugaeslan.is - 513-5950

HH Miðbæ hjúkrun
Vesturgötu 7
107 Reykjavík

Sækja um starf »