Hefur þú ástríðu fyrir hjúkrun?

Heilsugæslan Efstaleiti leitar að hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni á spennandi vettvangi sem er í sífelldri þróun. Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 15. júní nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Á stöðinni starfa, auk lækna, hjúkrunarfræðinga og ritara, ljósmóðir, sálfræðingar, félagsráðgjafi, sjúkraþjálfarar, lyfjafræðingur og sjúkraliðar. Mikil áhersla er lögð á samvinnu allra fagstétta til að finna sem farsælasta lausn mála með hag skjólstæðingsins að leiðarljósi. HH Efstaleiti leggur því mikla áherslu á  þverfaglegt samstarf og góða teymisvinnu. 

Einnig kemur til greina að ráða áhugasaman þriðja eða fjórða árs hjúkrunarnema sem hefur áhuga á að starfa í heilsugæslu eftir útskrift ef ekki fæst hjúkrunarfræðingur í starfið.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin starfssvið er skólaheilsugæsla og heilsueflandi móttaka, heilsuvernd aldraðra ásamt almennri móttöku á heilsugæslustöð. 

Heilsueflandi móttaka felur í sér mat á heilsu skjólstæðinga og þörf þeirra á heilsueflingu. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða nálgun, stuðning við breytingar og raunhæfa markmiðasetningu. 

Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.

 

Hæfnikröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
  • Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.05.2024

Nánari upplýsingar veitir

Áslaug Birna Ólafsdóttir - aslaug.b.olafsdottir@heilsugaeslan.is - 513-5350

HH Efstaleiti hjúkrun
Efstaleiti 3
103 Reykjavík

Sækja um starf »