Spennandi sumarstörf fyrir hjúkrunarnema

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins óskar eftir hjúkrunarnemum til starfa í sumarstörf hjá stofnuninni. Heilsugæslan er spennandi og fjölskylduvænn vinnustaður sem býður upp á lærdómsríkt starfsumhverfi. 

Við erum að leita að hjúkrunarnemum sem eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt, spennandi og skemmtileg verkefni innan heilsugæslunnar. Við bjóðum upp á einstaklingsmiðaða aðlögun sem tekur mið af áhugasviði hvers og eins. Mikið er af námstækifærum í heilsugæslunni meðal annars skyndimóttaka, opin móttaka, ung- og smábarnavernd, heilsuvernd og forvarnir. Tekið verður tillit til námsins við skipulag starfsins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Verkefni verða í samræmi við hversu langt viðkomandi er kominn í námi og áhugasviði viðkomandi
  • Þátttaka í teymisvinnu 

Hæfnikröfur

  • Hafa lokið a.m.k. einu ári í hjúkrunarnámi fyrir heimahjúkrun
  • Hafa lokið a.m.k. tveimur árum í hjúkrunarnámi fyrir heilsugæslustöð
  • Góð samskiptahæfni
  • Jákvæðni og áhugi á læra nýja hluti
  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta

Fríðindi tengt starfinu

  • Einstaklingsmiðuð aðlögun sem tekur mið af áhugasviði hvers og eins
  • Stytting vinnuvikunnar

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 20 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.05.2024

Nánari upplýsingar veitir

Rósa Eiríksdóttir - rosa.eiriksdottir@heilsugaeslan.is - 513-5034

HH Svið mannauðs- og nýliðunar
Álfabakki 16
109 Reykjavík

Sækja um starf »