Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Hamraborg

Heilsugæslan Hamraborg auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september 2024 eða eftir nánara samkomulagi. 

Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni á spennandi vettvangi sem er í sífeldri þróun. Á heilsugæslunni í Hamraborg er góð samvinna fagstétta og frábær starfsandi, jafnframt er stutt í helstu stofnbrautir og góðar samgöngur í kring. Á stöðinni starfa sérfræðingar í heimilislækningum, almennir læknar, hjúkrunarfræðingar, ljósmæður, sálfræðingar, félagsráðgjafi, sjúkraþjálfari, skrifstofustjóri og ritarar.

 Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

HH  Hamraborg er með hjúkrunarmóttöku sem sinnir fólki á öllum aldri. Þá sinna hjúkrunarfræðingar bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt að svara Heilusveruskilaboðum og einnig erindum sem ekki eru bráð s.s. ferðamannaheilsuvernd og sárameðferð ásamt heilsueflandi móttöku. Heilsueflandi móttaka felur í sér mat á heilsu skjólstæðinga og þörf þeirra á heilsueflingu. 

Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni. 

Ung og smábarnavernd eflir heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra. 

Hæfnikröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi 
  • Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni 
  • Faglegur metnaður 
  • Reynsla af og áhugi á teymisvinnu 
  • Sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi  
  • Frumkvæði og geta starfað sjálfstætt
  • Góð íslenskukunnátta
  • Góð almenn tölvukunnátt

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.05.2024

Nánari upplýsingar veitir

Huldís Mjöll Sveinsdóttir - huldis.mjoll.sveinsdottir@heilsugaeslan.is - 513-5700

HH Hamraborg hjúkrun
Hamraborg 8
200 Kópavogur

Sækja um starf »