Breytingar á skilaboðum í gegnum Heilsuveru

Mynd af frétt Breytingar á skilaboðum í gegnum Heilsuveru
25.11.2022
Gerðar verða breytingar á möguleikum til sendingar á skilaboðum í gegnum Heilsuveru þannig að lokað verður fyrir sendingar milli klukkan 22 á kvöldin og 6 á morgnana. Um er að ræða tilraunaverkefni til þriggja mánaða sem hefst mánudaginn 28. nóvember 2022. 

Sú leið að senda skilaboð í gegnum Heilsuveru var mikið nýtt á meðan Covid-19 heimsfaraldurinn stóð sem hæst. Nú er unnið að frekari þróun vefsins og þessa samskiptamáta þegar dregið hefur verulega úr álagi tengdu faraldrinum.

Notendum er bent á að mikið af upplýsingum og leiðbeiningum um sjúkdóma, lyf og heilsufar má finna á fræðsluvef Heilsuveru. Þar er einnig hægt að hafa samband við heilbrigðisstarfsfólk í gegnum netspjall frá 8 til 22 alla daga. 

Skilaboðum sem send eru í gegnum Mínar síður á Heilsuveru er almennt svarað innan þriggja virkra daga og eru því ekki fyrir bráðatilfelli. Sé um bráðatilfelli að ræða þarf að hringja í Neyðarlínuna í síma 112.