Heilsuvera valin besta heilbrigðislausn Umbraco

Mynd af frétt Heilsuvera valin besta heilbrigðislausn Umbraco
16.06.2022

Vefstofan Vettvangur var að fá verðlaun fyrir þekkingarvef Heilsuveru sem var valin  besta heilbrigðislausnin hjá Umbraco.

Umbraco er vefumsjónarkerfi sem er notað af 730 þúsund vefjum á heimsvísu. Þar á meðal eru mjög margir heilbrigðisvefir.  

Umfjöllun um verðlaunahafana í ár.

Stutt myndband sem kynnir vefina sem voru tilnefndir sem "Best Healthcare Solution".

Umsögn dómnefndar: 

''What an amazing project - certainly a turning point in health services in Iceland in the shape of a central online healthcare record. This entry clearly explained the aim of the website, the functionality as well as, very importantly, results and uptake. The design is clean and supports the purpose of the site, and looks easy to navigate. The versatile and extensive use of taxonomy creates a dynamic and intuitive way to browse a large amount of content. Great work!''

Við erum afar ánægð með að flokkun efnis og leiðakerfi sé nefnt sértaklega í umsögninni því við höfum lagt mikla vinnu í að aðgengi að fræðsluefninu sé einfalt og gott. Okkar notendur hafa kunnað að meta það og á árinu 2021 voru 15 milljón flettingar á þekkingarvef Heilsuveru.

Þekkingarvefur Heilsuveru er samstarfsverkefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Embætti landlæknis og nýlega bættist Landspítalinn formlega í hópinn.