Heilsugæslan Miðbæ byrjuð að nota Heilsuveru.is

Mynd af frétt Heilsugæslan Miðbæ byrjuð að nota Heilsuveru.is
14.04.2015

Heilsuvera.is er vefsvæði þar sem notandi getur átt í samskiptum við heilbrigðisþjónustuna og nálgast gögn sem skráð eru um hann í heilbrigðiskerfið á Íslandi.

Núna er Heilsugæslan Miðbæ byrjuð að nota Heilsuveru og er áttunda stöðin sem tekur hana í notkun. Heilsugæslan Efra-Breiðholti, Heilsugæslan Hamraborg, Heilsugæslan Glæsibæ, Heilsugæslan Grafarvogi, Heilsugæslan Mjódd, Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Heilsugæslan Sólvangi voru áður byrjaðar að nota Heilsuveru.

Ekki eru komnar dagsetningar á hvenær aðrar heilsugæslustöðvar bætast í hópinn fyrir vefbókanir og lyfjaendurnýjanir en allir einstaklingar hafa aðgang að lyfseðlalista, lyfjaúttektum, bólusetningaupplýsingum og upplýsingum um skráðan heimilislækni eða heilsugæslu.

Innskráning

Til að auka öryggi við innskráningu er krafist rafrænna skilríkja. Flest debetkort frá íslenskum bönkum innihalda rafræn skilríki í dag. Einnig geta viðskiptavinir Símans og Vodafone fengið rafræn skilríki í farsíma sína.

Til að byrja með er eftirfarandi virkni í boði:

Lyfseðlar

Aðgengilegt yfirlit yfir lyfseðla sem eru í lyfseðlaskrá Landlæknis. Einfalt viðmót til að óska eftir endurnýjun á ákveðnum lyfjum gegnum vefinn án þess að þurfa hringja inn eða koma á heilsugæslu.

Bólusetningaskrá

Yfirlit yfir bóluefni sem þér hafa verið gefin samkvæmt bólusetningarskrá Sóttvarnalæknis. 

Tímabókanir

Þægilegt viðmót til að bóka viðtalstíma læknis á þinni heilsugæslustöð. Nauðsynlegt er að vera skráður á stöðina til að geta bókað.

Hér getur þú opnað Heilsuveru: www.heilsuvera.is