Fyrirlestur um emotional CPR

Mynd af frétt Fyrirlestur um emotional CPR
24.06.2015

Recover your life through eCPR and open dialogue

Hugarafl býður til opins fyrirlestrar í Háskólanum í Reykjavík, með Daniel Fisher M.D., Ph.D fimmtudaginn 25. júní kl.17:00-19:00 í sal M105, ókeypis aðgangur. 

Allir velkomnir!

 

Daniel Fisher geðlæknir talar um bata, batanálgun í þjónustu við einstaklinga með geðraskanir og kynnir einnig „Open dialogue“ og eCPR(emotional CPR) sem er nálgun sem hann hefur þróað til að mæta einstaklingum í tilfinningalegu álagi með nánd og öryggi. 

Daniel Fisher er geðlæknir frá Harvard Medical háskólanum. Hann náði bata af geðklofa og er einn a fáum geðlæknum í heiminum sem talar opinberlega um reynslu sína af geðsjúkdómum. Hann hefur tvisvar áður komið til Íslands með fyrirlestra og vinnusmiðjur á vegum Hugarafls, en Hugarafl  starfar eftir hans hugmyndafræði, þ.e. Pace módelið (PACE=Personal assistance in community existence) sem byggist á valdeflingu(empowerment). Fisher er fyrrverandi framkvæmdastjóri National Empowerment Center í Boston. Hann fer víða um heim og ræðir reynslu sína og styður jafnframt samfélög eins og okkar til að innleiða batahugmyndafræði. Að þessu sinni hefur hann haldið námskeið hjá Hugarafli í eCPR.