Kynningarfundur fyrir læknanema í Debrecen

Mynd af frétt Kynningarfundur fyrir læknanema í Debrecen
17.05.2016

Í síðustu viku fóru fjórir af sex nefndarmönnum úr nefnd Velferðarráðuneytis um skipulag námsblokka læknakandídata og kynntu sér læknanám í Ungverjalandi og héldu kynningarfund um kandídatsárið fyrir læknanema í Debrecen.

Læknar sem útskrifast úr háskólum fá að jafnaði ekki lækningaleyfi fyrr en að loknu kandídatsári. Kandídatsár er tólf mánaða klínískt nám sem er þannig skipulagt að a.m.k. fjórir mánuðir séu á lyflækningadeild, tveir mánuðir á skurðlækningadeild og/eða bráðadeild og fjórir mánuðir á heilsugæslustöð. Tveir mánuðir eru utan skyldumánaða og er til dæmis hægt að bæta þeim við heilsugæsluhlutann þannig að sex mánuðir séu á heilsugæslustöð.

Fulltrúarnir sem voru styrktir af styrktir af Velferðarráðuneytinu, Landspítala háskólasjúkrahúsi (LSH), Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) og Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) voru:

  • Alma Eir Svavarsdóttir kennslustjóri kandídata við HH og kennslustjóri sérnáms í heimilislækningum 
  • Bjartur Sæmundsson deildarlæknir á skurðdeild LSH
  • Gróa Björk Jóhannesdóttir barnalæknir, staðgengill framkvæmdastjóra lækninga við SAk
  • Inga Sif Ólafsdóttir, formaður nefndarinnar og kennslustjóri kandídata á LSH

Fundurinn var haldinn í fundarsal í miðbæ Debrecen og var dagskráin á þessa leið:

  1. Kynning á kandídatsári á Íslandi, nýja reglugerðin, nýja marklýsingin, fræðsluprógramm og uppbygging spítalahluta kandídatsársins og að lokum um móttökudaga í júní – Inga Sif
  2. Kynning á umsóknarferlinu – Gróa Björk 
  3. Kynning á heilsugæsluhluta kandídatsárs og sérnámi í heimilislækningum á Íslandi – Alma Eir 
  4. Kynning á sérnámi í lyflækningum og öðrum sérgreinum við LSH – Inga Sif

Læknanemarnir voru spenntir, spurðu mikið og voru jákvæðir í garð kandídatsárs á Íslandi. Fundurinn var áætlaður sem tveggja tíma fundur en varð að fjögurra tíma fundi sem var mjög vel sóttur.

Læknanemarnir lýstu endurtekið yfir ánægju og þakklæti með komu fulltrúanna og voru ánægð með kynninguna. Þau höfðu mörg verið á kynningu annarra norðurlandaþjóða um kandídatsár þar og hægt var að leiðrétta margan misskilning og benda á þá fjölmörgu kosti sem kandídatsár á Íslandi hefur fram að bjóða. Þau sýndu bæði kandídatsárinu áhuga sem og sérnámi á Íslandi.

Á myndinni eru frá vinstri: Inga Sif, Bjartur, Gróa og Alma Eir.

Heimsóknin var ómetanleg, margir læknanemar sögðu að fundurinn hefði breytt skoðun þeirra á kandídatsári á Íslandi og sýndi það glögglega hvers virði þessi heimsókn var.

Það var einnig mikilvægt fyrir nefndarmenn að koma til Debrecen og kynnast læknanáminu þar, fá að skoða aðstöðuna og spítalana og fræðast um námið í Ungverjalandi.

Æskilegt er að stefna á að bjóða upp á svona kynningu annað hvert ár og fara til bæði Ungverjalands og Slóvakíu 2018 þar sem fyrstu íslensku læknanemarnir útskrifast frá Slóvakíu 2019.