Svar innan 40 daga fyrir 99% kvenna

Mynd af frétt Svar innan 40 daga fyrir 99% kvenna
21.10.2021

Nú í september náðum við þeim áfanga að einungis 29 dagar líða að meðaltali frá því að kona kemur í leghálsskimun þangað til hún fær svar.

Hámarks svartími hefur lækkað á sama hátt en 99% kvenna fá svar innan 40 daga. Stysti svartími í september var 13 dagar. 

Á myndritinu má sjá þróun svartíma frá því að heilsugæslan tók við verkefninu í janúar 2021 og svartíma Krabbameinsfélagsins þar áður til viðmiðunar.

Svarbréf kemur inn á island.is.