Tilgangslaus vottorð heyri sögunni til

Mynd af frétt Tilgangslaus vottorð heyri sögunni til
04.03.2026

Áætla má að launafólk og námsmenn á höfuðborgarsvæðinu hafi fengið hátt í 50 þúsund vottorð og rafrænar staðfestingar á skammtímaveikindum á síðasta ári fyrir vinnuveitendur og skóla með tilheyrandi vinnu fyrir lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk. 

Vottorðin hafa engan læknisfræðilegan tilgang, eru sóun á tíma heilbrigðisstarfsfólks og kominn er tími til að hætta að kalla eftir slíkum vottorðum sagði Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH), á opnum fundi Félags atvinnurekenda um veikindi og vinnumarkaðinn nýverið.

Fram kom í máli Sigríðar Dóru að á síðasta ári hafi læknar HH skrifað upp á rúmlega 20 þúsund vottorð á skammtímaveikindum. Því til viðbótar hafi launafólk og námsmenn sótt um 10 þúsund staðfestingar á skráningu veikinda í sjúkraskrá í gegnum Heilsuveru. Þá hafi læknar á Læknavaktinni skrifað rúmlega 7 þúsund vottorð og áætla megi að læknar á fjórum einkareknum heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu hafi skrifað um 10 þúsund til viðbótar.

„Við erum komin hátt í 50 þúsund vottorð um skammtímaveikindi á síðasta ári. Eigum við ekki að gera eitthvað í þessu og leita annarra leiða?“ sagði Sigríður Dóra.

Enginn læknisfræðilegur tilgangur

„Þá getum við líka spurt hvað við erum að votta í þessum skammtímavottorðum. Það er enginn læknisfræðilegur tilgangur með þessu,“ sagði Sigríður Dóra. Hún sagði veikindin oft yfirstaðin þegar fólk komi á heilsugæslu til að fá vottorð. Heilbrigðisstarfsfólk vilji frekar nota sinn tíma í að sinna veiku fólki.

Sigríður Dóra, sem hefur verið heimilislæknir áratugum saman, sagði enga þörf fyrir fólk að koma til læknis til að segja frá því að viðkomandi hafi verið með mígreni eða niðurgang sem nú sé genginn yfir. „Þetta fólk á bara að vera heima að hvíla sig,“ sagði Sigríður Dóra. Læknir eigi þó að sjálfsögðu að sinna fólki sem sé ítrekað veikt.

Vilja sinna ítrekuðum veikindum

„Við viljum hafa tíma til að sinna fólki,“ sagði Sigríður Dóra. Vottorðaskrif séu hluti af því, en þau verði að hafa tilgang. „Við viljum grípa ítrekuð skammtímaveikindi. Við viljum grípa þegar fólk er alltaf veikt á mánudögum eða endalaust að fá skólavottorð fyrir próf. Þá er eitthvað annað undirliggjandi, þar höfum við eitthvað að segja. Við viljum líka vinna með langvinn veikindi. Það þarf að vera tilgangur með aðkomu læknisins.“

Hafi atvinnurekendur áhyggjur af ítrekuðum skammtímaveikindum getur líka verið holt að líta í eigin barm, sagði Sigríður Dóra. Til dæmis þurfi að skoða hvort það sé eitthvað á vinnustaðnum sem hafi áhrif á líðan starfsfólksins.  

Uppsögn getur verið stórt áfall

Sigríður Dóra ávarpaði einnig umræðu um veikindavottorð á uppsagnarfresti og hafnaði því að læknar skrifi almennt athugasemdalaust undir slík vottorð án ástæðu. „Uppsögn er áfall,“ sagði hún. „Óvænt uppsögn er jafn mikið áfall í lífinu og óvæntur skilnaður eða að verða gjaldþrota.“ Hún sagði skipta máli hvernig staðið sé að uppsögn og að leita þurfi allra leiða til að milda áfallið. 

„Fólk kemur til okkar og segir frá alvarlegri vanlíðan,“ sagði Sigríður Dóra. „Við erum að fá fólk til okkar sem er algjörlega ráðþrota að öllu leiti og líður illa.“

Hægt er að horfa á erindi Sigríðar Dóru á fundi Félags atvinnurekenda á YouTube-síðu félagsins.