Tveir starfsmenn heilsugæslustöðvar með berklasmit

Mynd af frétt Tveir starfsmenn heilsugæslustöðvar með berklasmit
20.02.2026

Tveir starfsmenn einnar heilsugæslustöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) greindust með berklasmit við skimun á starfsfólki stöðvarinnar. Þó bakterían hafi greinst í starfsfólkinu er það ekki smitandi og sýnir engin einkenni um berkla. Skjólstæðingar stöðvarinnar hafa því ekki verið útsettir fyrir smiti í samskiptum við starfsmennina.

Ákveðið var í öryggisskyni að skima framlínustarfsfólk HH í kjölfar þess að berklasmit greindust hjá starfsfólki bráðamóttöku Landspítalans. Skimanir fóru fyrst fram á þeim starfsstöðvum þar sem talið var líklegt að starfsfólk hafi verið í samskiptum við einstaklinga sem gætu verið smitaðir af berklum.

Í ljós kom að tveir starfsmenn Heilsugæslunnar Miðbæ eru með berklasmit. Smit þýðir að bakterían greindist hjá starfsmönnunum. Þeir eru ekki með nein einkenni og eru ekki smitandi. Starfsmennirnir tveir fara nú í frekari rannsóknir og í kjölfarið í viðtal og mögulega meðferð hjá smitsjúkdómalækni.

Stöndum við bakið á starfsfólki

„Þetta er auðvitað áfall fyrir þessa starfsmenn, þeirra fjölskyldur og samstarfsfólk og okkar hugur er fyrst og fremst hjá þeim,“ segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri HH. „Við höfum rætt við bæði starfsmennina tvo og þeirra samstarfsfólk og upplýst að við stjórnendur stofnunarinnar munum standa þétt að baki þeim. Öryggi okkar starfsfólks er alltaf í forgrunni í allri okkar starfsemi.“

Berklar smitast við langvarandi eða náin samskipti við einstakling sem er með virka og smitandi berkla í lungum. Berklar smitast ekki við snertingu, af yfirborðum eða með því að nota áhöld eða fatnað sem smitaður einstaklingur hefur notað.

Öllu framlínustarfsfólki boðin skimun

Vinna við skimun framlínustarfsfólks HH mun halda áfram af fullum þunga. Þar verður áfram forgangsraðað þannig að starfsfólk sem metið er í meiri áhættu verði skimað sem fyrst en markmiðið er að bjóða öllu framlínustarfsfólki sem vill upp á berklapróf. 

Mikilvægt er að halda til haga að þó berklabakterían greinist þýðir það ekki að viðkomandi sé með berkla. 

  • Þegar einstaklingur er útsettur fyrir smiti eru miklar líkur á að ónæmiskerfi líkamans vinni á bakteríunni. 
  • Ef það gerist ekki getur bakterían verið til staðar í líkamanum lengi án þess að hafa nokkur áhrif og án þess að viðkomandi geti smitað aðra.
  • Ef bakterían er til staðar og ónæmiskerfi einstaklingsins veikist af einhverjum orsökum getur bakterían valdið virkum og smitandi berklum í lungum.

Meðferð einstaklinga með smit er tvennskonar.

  • Einstaklingur sem er með bakteríuna en ekki virkt smit er meðhöndlaður með lyfjameðferð sem getur tekið allt að sex mánuði. Viðkomandi heldur almennt fullri heilsu á meðan meðferðin fer fram en hún er ekki án óþæginda.
  • Einstaklingur sem er með virkt berklasmit er meðhöndlaður með lyfjameðferð í að minnsta kosti sex mánuði. Viðkomandi er almennt ekki smitandi eftir tveggja vikna meðferð.

Frekari upplýsingar um berkla og berklasmit má finna á vef embættis landlæknis.