Samið hefur verið við Parka lausnir um að innheimta gjald af öðrum en skjólstæðingum og starfsfólki sem notar bílastæði Heilsugæslunnar Efra-Breiðholti. Tilgangurinn er að tryggja laus stæði fyrir þá sem eiga erindi í heilsugæslustöðina.
Eins og upplýst hefur verið með áberandi skilti við Heilsugæsluna Efra-Breiðholti verður hér eftir innheimt vægt gjald fyrir þá sem nýta bílastæði stöðvarinnar. Ekkert gjald verður innheimt af þeim sem sækja þjónustu á heilsugæslustöðina né af starfsfólki. Þá verður ekki innheimt gjald af þeim sem leggja skemur en eina klukkustund.
Þau sem sækja þjónustu fá góðar leiðbeiningar og aðstoð í móttöku til að tryggja að þeir þurfi ekki að borga fyrir bílastæði þó heimsóknin standi lengur en klukkustund.
Með þessu vilja stjórnendur Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins bregðast við skorti á bílastæðum við heilsugæslustöðina. Mikil brögð voru af því að bílastæðin væru nýtt af fólki sem ekki kom á stöðina. Afleiðingarnar voru þær að fólk sem sótti þjónustu þar fékk ekki bílastæði. Það var einkum bagalegt fyrir fólk sem á erfitt með gang og fólk með ungabörn sem sækir þjónustu á stöðinni.
Auðveldara að fá stæði
„Ástandið á bílastæðunum hefur batnað mikið eftir að farið var að innheimta bílastæðagjöld af öðrum en þeim sem eiga erindi til okkar,“ segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. „Áður var nær ómögulegt fyrir okkar skjólstæðinga og starfsfólk að finna stæði en nú eru yfirleitt alltaf laus stæði við stöðina.“
„Það er mikilvægt að taka það fram að við erum ekki að gera þetta til að afla tekna fyrir stofnunina eða stöðina. Okkar eina markmið með þessu er að tryggja að óviðkomandi hætti að nota bílastæði stöðvarinnar og að fólk sem þangað á erindi geti nýtt okkar bílastæði,“ segir Sigríður Dóra.
Fordæmi fyrir aðrar stöðvar
Heilsugæslan Efra-Breiðholti var fyrsta starfsstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem fer þessa leið til að tryggja stæði fyrir skjólstæðinga. Nú er til skoðunar um að fara sömu leið á öðrum stöðvum þar sem ástand bílastæðamála hefur verið svipað.
Stæði gjaldskyld fyrir aðra en skjólstæðinga

03.02.2026