Ársskýrsla Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) fyrir árið 2024 er nú komin út. Þar er fjallað um helstu verkefnin á árinu auk þess sem þar má finna ársreikning stofnunarinnar.
„Það er ánægjulegt að líta til baka yfir árið 2024, ár sem einkenndist af mikilli eftirspurn eftir heilbrigðisþjónustu og vinnu við að finna nýjar leiðir til að mæta þörf fyrir þjónustuna,“ segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri HH, í ávarpi sínu í skýrslunni.
„Þrátt fyrir mikla eftirspurn eftir þjónustu stendur starfsfólk heilsugæslustöðva, geðheilsuteyma og annarra starfsstöðva HH sig frábærlega í að veita góða og faglega þjónustu. Á heilsugæslustöðvum er verið að breyta verklagi nú þegar Upplýsingamiðstöðin hefur tekið að sér að forflokka bráð erindi. Hjá geðteymum er áherslan lögð á að efla þjónustuna og skoða verklag og vinnuferla til að vinna á biðlistum og mæta stöðugri aukningu á eftirspurn,“ segir Sigríður Dóra.
Ársskýrsla 2024 er aðgengileg á vef HH.
Ársskýrsla HH fyrir árið 2024 er komin út

22.05.2025