Nota íslenskt smáforrit við niðurtröppun ópíóða

Mynd af frétt Nota íslenskt smáforrit við niðurtröppun ópíóða
22.02.2024
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins mun taka þátt í tilraunaverkefni um nýja þjónustu við einstaklinga sem taka sterk verkjalyf eða svefn- og róandi lyf að staðaldri og vilja aðstoð til að hætta eða draga úr notkun þeirra. Samningur um verkefnið var undirritaður í heilbrigðisráðuneytinu fyrr í dag.

Verkefnið er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda til að sporna við skaða af völdum ópíóíðafíknar. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Heilsugæslan Urðarhvarfi og Reykjanesapótek standa saman að verkefninu í samstarfi við sprotafyrirtækið Prescriby sem hefur þróað hugbúnaðinn sem verkefnið byggir á. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að styrkja tilraunaverkefnið.

Áætlun sniðin að hverjum og einum

Læknar og lyfjafræðingar munu sinna þjónustunni sem felst í persónusniðinni meðferðaráætlun fyrir þá einstaklinga sem munu nýta sér hana, fræðslu og eftirfylgd. Tilraunaverkefnið er til sex mánaða og áætlað að hægt verði að veita að lágmarki 300 einstaklingum þessa þjónustu á tímabilinu.

Við upphaf meðferðar verður tekið greiningarviðtal við hlutaðeigandi einstakling og útbúin persónusniðin meðferðaráætlun sem tekur mið af notkun hans á þeim lyfjum sem til stendur að trappa niður og áætlun um hvernig það verður gert. Áætlunin er skráð í smáforrit sem einstaklingurinn hefur aðgengi að í símanum sínum auk fræðslu og stuðnings. Forritið gerir meðferðaraðila kleift að fylgjast með meðferðarheldni skjólstæðings og bregðast við eftir þörfum.

Þjónustan verði aðgengileg um allt land

Prescriby er íslenskt sprotafyrirtæki sem var upprunalega stofnað af læknum og forriturum til að tryggja öruggari meðferðir með sterkum verkjalyfjum, róandi og svefnlyfjum. Í frétt á vef heilbrigðisráðuneytisins er haft eftir Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra að um mikilvæga þjónustu sé að ræða og að ef vel takist til sjái hann fyrir sér að þjónustan verði útvíkkuð og gerð aðgengileg um allt land.