Lausnarmót Heilsutækniklasans 2024

Mynd af frétt Lausnarmót Heilsutækniklasans 2024
11.01.2024
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins verður áfram samstarfsaðili Lausnamótsins sem Heilsutækniklasinn stendur fyrir. 

Lausnarmótið lengri útgáfa af hakkaþoni þar sem þátttakendur vinna með sérfræðingum frá mismunandi samstarfsaðilum mótsins við að þróa sína lausn. Samstarfsaðilar mótsins eru Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Landspítali og embætti landlæknis.

Markmið Lausnarmótsins er að útbúa notendamiðaðar heilbrigðislausnir með hugsun, ferlum og aðferðum nýsköpunar.

Umsóknarfrestur fyrir Lausnarmót Heilsutækniklasans er 1. febrúar 2024. Nánari upplýsingar má finna á vef Heilsutækniklasans þar sem einnig má sækja um að taka þátt.