Veikir og slasaðir bangsar velkomnir á Bangsaspítalann

Mynd af frétt Veikir og slasaðir bangsar velkomnir á Bangsaspítalann
20.09.2023

Hinn sívinsæli Bangsaspítali verður opinn fyrir slasaða eða veika bangsa laugardaginn 23. september. Bangsar og eigendur þeirra eru velkomnir á fjórar heilsugæslustöðvar þar sem læknanemar taka á móti þeim.

Öll börn, ásamt foreldrum og forráðamönnum, eru velkomin í heimsókn á þrjár heilsugæslustöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, auk Heilsugæslunnar Höfða, milli klukkan 10 og 16 á laugardag.

Þær heilsugæslustöðvar sem taka þátt eru:

  • Heilsugæslan Efra-Breiðholti
  • Heilsugæslan Efstaleiti
  • Heilsugæslan Sólvangi
  • Heilsugæslan Höfði

Heimsóknin fer þannig fram að hvert barn kemur með sinn eiginn bangsa. Gott er að foreldrar eða forráðamenn sem koma með séu búnir að ræða við börnin fyrir heimsóknina um hvað amar að bangsanum, hvort hann sé til dæmis með hálsbólgu, magapest eða brotinn fót. Þegar á heilsugæsluna er komið fær barnið að innrita bangsann og að því loknu kemur bangsalæknir og vísar barninu inn á læknastofu þar sem læknirinn skoðar bangsann og veitir honum þá aðhlynningu sem hann þarf á að halda.

Tilgangurinn með Bangsaspítalanum er tvíþættur. Annars vegar að fyrirbyggja hræðslu hjá börnum við lækna og heilbrigðisstarfsfólk. Hins vegar gefur hann læknanemum á yngri árum tækifæri til að æfa samskipti við börn og aðstandendur.

Það er Lýðheilsufélag læknanema sem stendur fyrir Bangsaspítalanum. Nánari upplýsingar má finna á Facebook-viðburði.