Sigríður Dóra nýr forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Mynd af frétt Sigríður Dóra nýr forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
13.09.2023
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Sigríði Dóru Magnúsdóttur í embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Hún tekur við stöðunni frá og með 15. september næstkomandi af fráfarandi forstjóra, Óskari Reykdalssyni. 

„Ég er stolt og þakklát fyrir þetta traust sem mér er sýnt og hlakka til að vinna áfram að góðum verkum með öllu því frábæra starfsfólki sem starfar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Ég tek við mjög góðu búi af fráfarandi forstjóra en það eru auðvitað mörg spennandi verkefni framundan,“ segir Sigríður Dóra.

Sigríður Dóra er með læknapróf frá Háskóla Íslands, sérfræðipróf í heimilislækningum og diplóma í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu. Sigríður býr yfir mikilli þekkingu og reynslu af rekstri og stjórnun í heilbrigðisþjónustu. Frá árinu 2019 hefur hún verið framkvæmdastjóri lækninga við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Áður hefur hún gegnt stöðu yfirlæknis á tveimur heilsugæslustöðvum, starfað sem umdæmislæknir sóttvarna og einnig sem rekstrarstjóri heilsugæslustöðvar.

Lögskipuð hæfnisnefnd sem metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana mat Sigríði mjög vel hæfa. Í áliti hæfnisnefndar kemur meðal annars fram að auk langrar reynslu af stjórnun og rekstri í heilbrigðisþjónustu hafi Sigríður reynslu af stefnumótun og breytingastjórnun þar sem hún hafi náð miklum árangri. Það sé mat nefndarinnar að Sigríður Dóra sé góður leiðtogi og mjög vel hæf til að gegna embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.