Heilsugæslan hættir einkennasýnatökum vegna Covid-19

Mynd af frétt Heilsugæslan hættir einkennasýnatökum vegna Covid-19
28.02.2023
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins mun hætta að taka sýni hjá fólki með einkenni Covid-19 frá og með 1. mars 2023. Aðeins verða tekin sýni hjá fólki sem ferðast til landa þar sem sýna þarf neikvætt Covid-19 próf.

Sýnataka fyrir ferðamenn mun fara fram alla virka daga í Heilsugæslunni Hlíðum. Um helgar sér Læknavaktin um sýnatökur. Bóka þarf sýnatöku í gegnum vefinn travel.covid.is.

Fólki sem er með einkenni Covid-19 getur ekki lengur mætt í sýnatöku til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til að fá staðfestingu á smiti. Þeim sem vilja staðfestingu um smit er bent á að notast við heimapróf, sem hægt er að kaupa í apótekum og stórmörkuðum.