Hvatt til Covid-19 bólusetninga fyrir fólk yfir sextugu

Mynd af frétt Hvatt til Covid-19 bólusetninga fyrir fólk yfir sextugu
18.01.2023

Heilsugæslustöðvar bjóða nú upp á bólusetningu og örvunarskammta af bóluefni við Covid-19 án endurgjalds. Fólk 60 ára og eldra og fólk með undirliggjandi sjúkdóma er hvatt til að þiggja örvunarskammt ef fjórir mánuðir eða meira eru liðnir frá síðustu bólusetningu. 

Aldur er einn stærsti áhættuþátturinn fyrir alvarlegum afleiðingum Covid-19 en örvunarbólusetning verndar fólk fyrir alvarlegum afleiðingum sjúkdómsins.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins sér um bólusetningar fyrir sína skjólstæðinga en heilbrigðisstofnanir utan höfuðborgarsvæðisins og einkareknar heilsugæslustöðvar munu annast bólusetningar fyrir þá sem skráðir eru á þær stöðvar.

Bólusett alla virka daga milli klukkan 9 og 15 hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í Álfabakka 14a í Mjódd. Ekki þarf að bóka tíma fyrirfram í bólusetningar í Álfabakkanum, aðeins að mæta á opnunartíma.

Til að fá bólusetningu á heilsugæslustöð þarf að bóka tíma í bólusetningu í gegnum mínar síður á Heilsuveru eða í gegnum síma hjá hverri heilsugæslustöð. Þá er einnig hægt að bóka tíma hjá Upplýsingamiðstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í síma 513-1700 og í gegnum netspjall Heilsuveru. Misjafnt er milli stöðva á hvaða tímum boðið er upp á bólusetningar og er hægt að finna nánari upplýsingar á vefsíðu hverrar heilsugæslustöðvar eða við tímabókun.

Upplýsingar um aukaverkanir vegna Covid-19 bólusetninga er að finna á vefnum covid.is.