Bráðaerindi fari fyrst til Upplýsingamiðstöðvar heilsugæslunnar

Mynd af frétt Bráðaerindi fari fyrst til Upplýsingamiðstöðvar heilsugæslunnar
29.12.2022

Vegna mikils álags á bráðamóttöku Landspítalans er fólk með bráð erindi hvatt til að leita til Upplýsingamiðstöðvar heilsugæslunnar áður en farið er á bráðamóttöku eða heilsugæslustöð vegna veikinda.

Hægt er að hafa samband við Upplýsingamiðstöðina í síma 513-1700 eða síma 1700 til að fá aðstoð frá heilbrigðisstarfsfólki ásamt ráðgjöf og leiðbeiningum. Þá má hafa samband við sína heilsugæslustöð beint í síma. Einnig er hægt að hafa samband í gegnum netspjallið á vefnum Heilsuvera. Á Heilsuveru má finna upplýsingar um sjúkdóma, sjúkdómseinkenni og rétt viðbrögð sem gott er að kynna sér.

Í neyðartilvikum hringið tafarlaust í Neyðarlínuna í síma 112.

Heilsugæslustöðvar veita bráðaþjónustu fyrir bráð veikindi og smáslys. Ekki er nauðsynlegt panta tíma til að nýta sér þjónustuna, en gott að hringja fyrst í Upplýsingamiðstöðina. Heilsugæslustöðvar eru opnar milli klukkan 8 og 17 alla virka daga. 

Læknavaktin á Háaleitisbraut er opin virka daga milli klukkan 17 og 22 og um helgar milli klukkan 9 og 22.

Sóttvarnalæknir minnir á vef embættis landlæknis á mikilvægi persónubundinna sóttvarna þar sem þær draga úr smiti til annarra og þar með alvarlegum veikindum meðal áhættuhópa. Allir ættu að halda sig til hlés í veikindum, sinna handhreinsun, nota grímu við ákveðnar aðstæður eins og á heilbrigðisstofnunum og forðast umgengi við ungbörn og aðra í áhættuhópum ef einkenni eru til staðar.