Um 19 þúsund þáðu bólusetningu í Höllinni

Mynd af frétt Um 19 þúsund þáðu bólusetningu í Höllinni
12.10.2022
Um það bil 19 þúsund íbúar höfuðborgarsvæðisins 60 ára og eldri þáðu bólusetningu í tveggja vikna átaki í Laugardalshöll sem lauk í síðustu viku. Átakið gekk mjög vel og almennt var mikil ánægja meðal þeirra sem komu með þjónustuna.

Samtals þáðu 19.002 bólusetningu á meðan átakinu stóð. Boðið var upp á bólusetningu gegn Covid-19 og voru alls 13.125 skammtar gefnir. Aðeins var boðið upp á örvunarskammt fyrir þau sem voru með grunnbólusetningu fyrir. Samhliða var boðið upp á bólusetningu við inflúensu og gat fólk ráðið hvort það fékk bólusetningu við öðrum eða báðum sjúkdómunum. Alls voru gefnir 15.259 skammtar af bóluefni við inflúensu í átakinu í Höllinni. 

Eftir að átakinu lauk hafa yfir 80 prósent landsmanna yfir 50 ára aldri fengið að minnsta kosti þrjá skammta af bóluefni og vel rúmur helmingur fólks á aldrinum 16 til 50 ára. Um helmingur landsmanna 70 ára og eldri hafa nú fengið fjóra skammta og þriðjungur fólks á aldrinum 60 til 69 ára. Hægt er að kynna sér tölfræði yfir bólusetningar á covid.is.

Bólusetningar færast á heilsugæslustöðvar

Nú þegar bólusetningarátakinu í Laugardalshöll er lokið færast bólusetningar við bæði Covid-19 og inflúensu inn á heilsugæslustöðvarnar. Fólk undir 60 ára aldri sem er með undirliggjandi sjúkdóma er hvatt til að hafa samband við sína heilsugæslustöð og kynna sér hvenær hægt er að koma í bólusetningu.