Boðið upp á bólusetningu við inflúensu í Laugardalshöll

Mynd af frétt Boðið upp á bólusetningu við inflúensu í Laugardalshöll
28.09.2022
Hefðbundin bólusetning við inflúensu fyrir 60 ára og eldri fer fram í Laugardalshöll að þessu sinni.  Í Höllinni verður boðið upp á bæði örvunarskammt við Covid-19 og bólusetningu við inflúensu og er hægt að velja um að fá annað hvort eða bæði.

Bólusett verður alla virka daga fram til föstudagsins 7. október milli klukkan 11 og 15 í anddyri Laugardalshallar. 

Þau sem þegar hafa fengið fjórða skammtinn af bóluefni við Covid-19 eru sérstaklega hvött til að mæta og þiggja bólusetningu við inflúensu.

Fyrir þau sem vilja þiggja bólusetningu við Covid-19 þurfa fjórir mánuðir að hafa liðið frá því þau fengu þriðja skammt af bóluefni. Einnig þurfa fjórir mánuðir að hafa liðið frá því viðkomandi jafnaði sig af smiti af Covid-19. 

Notast verður við nýja útgáfu af bóluefni við Covid-19 og verður því ekki boðið upp á grunn bólusetningu fyrir þá sem ekki hafa verið bólusettir áður. Fólk er vinsamlegast beðið um að mæta í stuttermabol innst klæða til að auðvelda bólusetningu.

Einnig bólusett á landsbyggðinni

Heilbrigðisstofnanir utan höfuðborgarsvæðisins munu annast bólusetningar fyrir sína skjólstæðinga.

Eftir að bólusetningarátaki 60 ára og eldri er lokið er stefnt að því að bjóða yngri en 60 ára sem vilja örvunarskammt upp á bólusetningu á heilsugæslustöðvum. Þar verður einnig boðið upp á bólusetningu við inflúensu á sama tíma fyrir þau sem það vilja.

Upplýsingar um aukaverkanir vegna Covid-19 bólusetningar er að finna á vefnum covid.is.