Bangsar velkomnir á þrjár heilsugæslustöðvar

Mynd af frétt Bangsar velkomnir á þrjár heilsugæslustöðvar
07.09.2022
Veikir og slasaðir bangsar ásamt eigendum eru velkomnir á þrjár heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu laugardaginn 10. september milli klukkan 10 og 16 þegar boðið verður upp á hinn geysivinsæla bangsaspítala.

Öllum börnum ásamt foreldrum eða forráðamönnum er boðið að koma í heimsókn með veika eða slasaða bangsa á Heilsugæsluna Efstaleiti, Heilsugæsluna Höfða og Heilsugæsluna Sólvang.

Tilgangurinn með bangsaspítalanum er tvíþættur. Annars vegar að fyrirbyggja hræðslu hjá börnum við lækna og heilbrigðisstarfsfólk og hins vegar að gefa læknanemum á yngri árum tækifæri til að æfa samskipti við börn

Heimsóknin fer þannig fram að hvert barn kemur með sinn eigin bangsa. Gott er að ræða fyrir fram við barnið um það hvernig bangsinn er veikur (hvort hann sé til dæmis með hálsbólgu, magapest eða brotinn fót). Þegar á heilsugæsluna er komið fær barnið að innrita bangsann og að því loknu kemur bangsalæknir og vísar barninu inn á læknastofu þar sem læknirinn skoðar bangsann og veitir honum þá aðhlynningu sem hann þarf á að halda.

Íþróttaálfurinn og Solla mæta og heilsa upp á krakkana og veiku bangsana á bangsaspítalanum næsta laugardag. Þau líta við í um 15 mínútur á allar heilsugæslustöðvarnar þrjár sem hýsa bangsaspítalann í ár. Þau verða klukkan 14:30 í Efstaleitinu, klukkan 15:00 á Höfða og klukkan 15:30 á Sólvangi.

Nánari upplýsingar um bangsaspítalann má finna á sérstökum Facebook-viðburði sem settur hefur verið upp. Eins og áður er það Lýðheilsufélag læknanema sem stendur fyrir bangsaspítalanum.