Heilsugæslan Grafarvogi flytur tímabundið vegna umbóta á húsnæði

Mynd af frétt Heilsugæslan Grafarvogi flytur tímabundið vegna umbóta á húsnæði
24.06.2022

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins ætlar að bæta verulega þjónustu við íbúa Grafarvogs. Ráðist verður í umfangsmiklar umbætur á húsnæði heilsugæslustöðvarinnar í Spönginni. Markmiðið er að Heilsugæslan Grafarvogi bjóði upp á fyrsta flokks þjónustu í fyrsta flokks húsnæði. 

Því miður þurfum við að loka húsnæðinu tímabundið og verður hefðbundin þjónusta veitt á þremur stöðum þar til framkvæmdum lýkur:

  • Spöngin 37, 2. hæð (sami inngangur og Sjúkraþjálfun Grafarvogs):
    Skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi, hjúkrunarmóttaka og sálfræðiþjónusta fyrir börn frá og með -4. júlí

  • Hraunbær 115, 1. hæð í austurenda:
    Mæðravernd, leghálsskimun, ung- og smábarnavernd, læknamóttaka, sjúkraþjálfari, sykursýkismóttaka og heilsuvernd aldraðra. Allt fyrirfram bókaðir tímar - frá og með 1. júlí

  • Hraunbær 115, 2. hæð (Heilsugæslan Árbæ):
    Blóðrannsóknir - frá og með 20. júní.

Heilsugæslan verður alfarið lokuð 30. júní vegna flutninganna og móttakan Spönginni 37 er einnig lokuð 1. júlí. Við bendum á aðrar heilsugæslustöðvar þessa daga.

Símanúmerið er áfram það sama: 
  • Afgreiðsla 513-5600 (kl. 8-16) 
  • Lyfjaendurnýjun 513-5602 (kl. 9-11)

Okkur þykir leitt að geta tímabundið ekki veitt þjónustu á einum stað innan hverfis en hlökkum til að taka á móti þér í endurbættu húsnæði.

Ef þú hefur athugasemdir eða ábendingar viljum við gjarnan heyra frá þér. Sendu tölvupóst á netfangið heilsugaeslan@heilsugaeslan.is

Að komast á staðinn

il að komast frá Spönginni í Hraunbæ 115 með Strætó er hægt að taka leið 6 og fara út á stoppistöðinni Ártún A (sem er á brúnni).

Gengið niður göngustíginn í stoppistöðina Ártún D (sem er undir brúnni) og leið 16 tekin.

Farið er út á stoppistöðinni Bæjarbraut en þaðan er 2 mínútna gangur að Hraunbæ 115 (Heilsugæslan Árbæ er í sama húsi).

Uppfært 1. júlí 2022