Opið hús í 4. skammtinn fyrir 80 ára og eldri

Mynd af frétt Opið hús í 4. skammtinn fyrir 80 ára og eldri
20.06.2022

Undanfarið hefur verið mikil aðsókn í fjórða skammtinn af  COVID-19 bóluefni.

Því mun Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins bjóða upp á opið hús í bólusetningar næstu 2 vikurnar, 21. júní til 1. júlí, milli kl. 13:00 og 15:00 virka daga, í Mjóddinni.

Bólusetningarnar verða í Álfabakka 14a á 2. hæð. Bólusett er í almannarými og það er grímuskylda. Notað er Pfizer bóluefnið en einnig verður hægt að fá Janssen ef óskað er.

Áfram bjóða allar heilsugæslustöðvarnar upp á ákveðna bólusetningadaga og þar þarf að panta tíma í síma 513-1700 eða í gegnum mínar síður á heilsuvera.is.  

Þetta opna hús er einkum ætlað 80 ára og eldri og fólki með undirliggjandi sjúkdóma.

Til að geta fengið fjórða skammt bóluefnisins þurfa að lágmarki fjórir mánuðir að hafa liðið frá þriðja skammti bóluefnisins.

Við hvetjum  þessa hópa til að bóka tíma í bólusetningu á heilsugæslustöð eða mæta í opið hús í Álfabakka 14a næstu tvær vikurnar.