Bólusetningar til áramóta

Mynd af frétt Bólusetningar til áramóta
02.12.2021

Fylgist með hér. Fréttin er uppfærð þegar eitthvað breytist og var síðast uppfærð 15. desember kl.11:07.

Velkomin í Laugardalshöll í grunn- eða örvunarbólusetningu

Við höldum áfram með örvunarbólusetningar og öll sem eru komin á tíma eru velkomin. Öll sem eru ekki búin með grunnbólusetningu eru líka hvött til að mæta í Laugardalshöll.

Öll  sem fengu seinni skammt grunnbólusetningar fyrir a.m.k. 5 mánuðum geta komið í örvunarbólusetningu. Ekki er nauðsynlegt að hafa strikamerki, það er nóg að gefa upp kennitölu.

Nánar um örvunarbólusetningar og grunnbólusetningar

  • Fólk sem fékk Janssen og svo örvunarskammt getur komið í þriðju bólusetningu fimm mánuðum eftir örvunarskammtinn.
  • Þau sem eru 70 ára og eldri geta komið í örvun ef 3 mánuðir eru liðnir frá grunnbólusetningu.
  • Karlmenn 39 ára og yngri eiga helst ekki að fá Moderna skv. Embætti landlæknis og er því mælt með Pfizer fyrir þá.  
  • Börn 12 til 18 ára mega bara fá Pfizer.
  • AstraZeneca er ekki til og verður ekki í boði það sem eftir er árs.
  • Öll sem eru með íslenska kennitölu geta komið í bólusetningu. Þau sem eru ekki með íslenska kennitölu þurfa fyrst að skrá sig á síðunni bolusetning.covid.is og bíða eftir staðfestingu áður en þau mæta.
  • Þau sem þurfa bólusetningu út í bíl verða bólusett á fimmtudögum og föstudögum. Einfaldast er að hafa fylgdarmann sem getur farið inn til að láta vita. Þau sem koma ein geta hringt í síma 513-5000 til að fá aðstoð.
  • Þau sem hafa fengið COVID-19 þurfa að kynna sér: Samantekt á reglum og ráðleggingum fyrir einstaklinga með sögu um COVID-19

Dagskrá til áramóta í Laugardalshöll

Svona er áætlunin fyrir næstu vikur með fyrirvara um breytingar.  

13. desember til 22. desember

Bólusetningar alla virka daga frá kl. 10:00 til 15:00 í Laugardalshöll. 
Opið hús fyrir óbólusetta, hálfbólusetta og þau sem eru komin á tíma með örvunarskammt.
Pfizer, Moderna og Janssen í boði alla daga,
Takmörkuð opnun: Þriðjudaginn 21. desember á að bólusetja viðkvæman hóp. Fólk er beðið um að koma frekar aðra daga í bólusetningu ef það mögulega getur.
Ekki er bólusett 17. desember, á Þorláksmessu og aðfangadag.

Milli jóla og nýárs - 27. desember til 30. desember

Bólusett virka alla daga frá kl. 10:00 til 12:00 í Laugardalshöll.
Opið hús fyrir óbólusetta, hálfbólusetta og þau sem eru komin á tíma með örvunarskammt.
Pfizer, Moderna og Janssen í boði alla daga.
Ekki er bólusett á gamlársdag.

Janúar 2022

Við höldum áfram að bólusetja í janúar og dagskrá verður kynnt þegar nær dregur.
Þá verður haldið áfram að boða þau í örvunarbólusetningu sem eru komin á tíma.