COVID-19 bólusetningabíll

Mynd af frétt COVID-19 bólusetningabíll
19.11.2021

Markmiðið með COVID-19 bólusetningabílnum er að ná til þeirra í samfélaginu sem eru ennþá óbólusett .

Við óskum eftir samstarfi við fyrirtæki og stofnanir sem mögulega hafa óbólusett starfsfólk.

Fyrirtæki geta bókað heimsókn bólusetningabílsins í síma 513-5000  eða á bolusetning@heilsugaeslan.is.

Hægt er að óska eftir þeim tíma sem hentar best en bíllinn er á ferðinni virka daga milli kl. 10:00 og 15:00.

Starfsfólk bólusetningabílsins mun þá koma og bjóða upp á bólusetningu og jafnframt ræða bólusetningar við þau sem eru í vafa.