Það styttist í að ADHD teymi fyrir fullorðna taki til starfa en stefnt er að því að starfsemin hefjist 1. febrúar 2022.
Nú er búið að opna fyrir tilvísanir til teymisins. Heimilislæknar senda beiðnir í gegnum sjúkraskrárkerfið Sögu.
Teymið mun bjóða greiningu og meðferð fyrir einstaklinga 18 ára og eldri og starfa á landsvísu.
Undirbúningur er í fullum gangi en teymið verður staðsett á Skúlagötu 21, 101 Reykjavík.
Sjá einnig eldri frétt um teymið: ADHD teymi fyrir fullorðna
Opið fyrir tilvísanir hjá ADHD teymi fyrir fullorðna
15.11.2021