Dagskrá bólusetninga - Vika 38 og áfram

Mynd af frétt Dagskrá bólusetninga - Vika 38 og áfram
20.09.2021

Við bólusetjum alla virka daga milli kl. 10.00 og 15:00 á Suðurlandsbraut 34.

Bóluefnið Pfizer er notað alla virka daga. Bóluefnin Janssen og Moderna eru eingöngu í boði á miðvikudögum og AstraZeneca eingöngu á föstudögum.

Öll óbólusett og hálfbólusett, 12 ára og eldri, sem eru með íslenska kennitölu geta komið í bólusetningu á þessum tíma.

Börn 12 til 15 ára þurfa að vera í fylgd forráðarmanns. Börn fædd síðari hluta árs 2009 eru velkomin í bólusetningu um leið og 12 ára aldri er náð.

Þau sem eru ekki með íslenska kennitölu, þurfa fyrst að skrá sig með því að senda tölvupóst á bolusetning@heilsugaeslan.is. Fram þarf að koma: Nafn, fæðingardagur og ár, kyn, upprunaland, netfang og helst íslenskt GSM símanúmer til að taka við SMS boði. Ef einstaklingur er hálfbólusettur þurfa upplýsingar um bóluefni og tímasetningu að fylgja.
Einstaklingur án íslenskrar kennitölu má ekki mæta í bólusetningu fyrr en staðfesting á skráningu í bólusetningarkerfið hefur borist. 

Örvunarskammar

Bóluefnið Pfizer verður notað í örvunarskammt alla vikuna. 

Örvunarskammtar eru í boði fyrir þessa hópa:

  • Fólk sem fékk Jansen og meira en 28 dagar eru liðnir frá bólusetningunni.
  • Fólk sem er 70 ára og eldra ef 3 mánuðir eru liðnir frá seinni skammti.
  • Fólk sem er 60 ára og eldra ef 6 mánuðir eru liðnir frá seinni skammti. 

Síðast uppfært 20. september