Dagskrá bólusetninga - Vika 33

Mynd af frétt Dagskrá bólusetninga - Vika 33
10.08.2021

*See English here: Vaccination schedule - week 33

Í viku 33 er stefnt á að bólusetja eftirfarandi hópa: 

  • Endurbólusetning hjá þeim sem fengu fyrri skammt af Pfizer í júlí.
  • Örvunarskammtur fyrir þau sem hafa fengið Jansen bólusetningu fyrir a.m.k. 28 dögum. Þau sem eru með mótefni eftir covid-19 sýkingu og hafa fengið Jansen örvunarskammt þurfa ekki að mæta í annan örvunarskammt.
  • Barnshafandi konur sem fengu fyrri skammtinn 29. júlí. Þessi hópur getur einnig mætt á Suðurlandsbraut í næstu viku (Uppfært 18. ágúst)

Það verða send út boð fyrir þessa hópa, fólk er vinsamlegast beðið um að mæta á þeim tíma sem boðið segir til um. 

Bólusett verður í Laugardalshöllinni á þessum tímum:

  • Mánudaginn 16.ágúst frá kl. 10:00-15:00
  • Þriðjudaginn 17.ágúst frá kl. 10:00-15:00
  • Miðvikudaginn 18.ágúst frá kl. 10:00-15:00
  • Fimmtudaginn 19.ágúst frá kl. 10:00-15:00
Fólk sem er óbólusett er velkomið í bólusetningu á Suðurlandsbraut 34 klukkan 10-15 alla virka daga. Það er líka velkomið í bólusetningu í Laugardalshöll á miðvikudaginn og fimmtudaginn. 
 

Fyrirkomulag á bólusetningastað 

Allir eru beðnir um að mæta með skilríki og við minnum á að grímuskylda er á bólusetningastað. Bólusett er í axlarvöðva og í almennu rými. Gott er að vera í stuttermabol innst klæða.  Allir þurfa að bíða í um 15 mínútur eftir að bólusetning er gefin.

Spurningar  

Ef þú hefur spurningar varðandi bólusetningar og heilsufar bendum við á netspjallið á heilsuvera.is.    

Við bendum líka á ítarlegar upplýsingar varðandi bólusetningar, bóluefnin og aukaverkanir á covid.is/bolusetningar

Hafi fólk bráðaofnæmi við stungulyfjum, eða af óþekktum toga, er ekki ráðlegt að bólusetja það.