Bólusetningar barna 12-15 ára án undirliggjandi sjúkdóma

Mynd af frétt Bólusetningar barna 12-15 ára án undirliggjandi sjúkdóma
28.06.2021

Vegna fréttar sem birtist á vef Embættis landlæknis þann 28.6.2021 um bólusetningar barna vill Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri:

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins mun ekki boða þennan aldurshóp í bólusetningu.  
Foreldrar geta óskað eftir bólusetningu fyrir börn sín í gegnum heilsugæslustöðvarnar ef þau telja hana nauðsynlega en hún verður ekki framkvæmd fyrr en eftir sumarfrí, eftir miðjan ágúst.