Dagskrá bólusetninga - Vika 25

Mynd af frétt Dagskrá bólusetninga - Vika 25
16.06.2021

Í viku 25 er búið að skipuleggja þessar bólusetningar í Laugardalshöll. Fréttin verður uppfærð með nánari upplýsingum eftir því sem skipulag skýrist. (Frétt uppfærð 23. júní kl.14:52)

Við bendum á Algengar spurningar um fyrirkomulag bólusetninga hér á vefnum. Leitið svara þar áður en þið hafið samband við heilsugæsluna. Mikið álag er á símkerfum.

  • Þriðjudaginn 22. júní er Janssen bólusetning. Þá er haldið áfram með handahófs aldurshópa. SMS boð hafa verið send til þeirra sem býðst bólusetning þennan dag. Bólusett er kl. 9-14. 
    Boð hafa fengið: karlar 1990, 1991, 1995, 1998,  og konur 1985, 1989, 1990, 1991, 1995, 1999. 
    Eftir kl.14 geta þau komið sem eiga eldra boð í Janssen bóluefnið, meðan birgðir endast. Þetta er áætlaður síðasti dagurinn sem hægt er að fá Janssen fyrir sumarfrí.
  • Miðvikudaginn 23. júní er Pfizer bólusetning. Þá er seinni bólusetning og haldið áfram með handahófs aldurshópa. SMS boð hafa verið send til þeirra sem býðst bólusetning þennan dag. Bólusett er kl. 9-15
    Ungmenni fædd 2005 fá boð þennan dag. Þau sem fá ekki SMS vegna þess að símar þeirra eru ekki skráðir geta athugað á mínum síðum á heilsuvera.is hvenær þau eiga að koma. Hvetjið 2005 ungmenni í kringum ykkur til að athuga þetta. Einnig fá boð: karlar 1980, 1989 og konur 1987, 1994.
    Eftir kl.14 geta þau komið sem eiga eldra boð í Pfizer bóluefnið, meðan birgðir endast. Eftir kl. 15 geta allir komið óháð boði.
    Þetta er síðasti dagurinn sem hægt er að fá fyrri skammt af Pfizer fyrir sumarfrí.
  • AstraZeneca bólusetning sem vera átti fimmtudaginn 24. júní frestast um viku.

Í viku 26 verður AstraZeneca bólusetning (með fyrirvara um að efni berist í tæka tíð). Þá er eingöngu seinni bólusetning. Nánari upplýsingar um hverjir fá boð og skipulag koma hér inn síðar.

Bólusetning er í boði þessa viku fyrir:

  • þau sem fá SMS boð um að mæta þessa daga
  • þau sem eru með íslenska kennitölu og tilheyra árgangshópum sem sem fá boð þessa viku.

Einnig geta þau sem komust ekki í bólusetningu þegar þau/þeirra hópur fékk boð mætt eftir ákveðinn tíma, sjá dagskrána, Þá er bólusett meðan birgðir endast.

  • þau sem eru fædd 1975 eða fyrr.
  • þau sem tilheyra árgangshóp sem búið er að draga út.
  • þau sem hafa fengið boð sem þau hafa ekki nýtt sér. 

Það er ekki hægt að mæta í annað bóluefni en þú fékkst boð í. Seint í sumar verða bólusetningardagar þar sem hægt er að velja bóluefni.

Þau sem fá boð en komast ekki, geta mætt næst þegar bóluefnið er í boði. Ekki biðja okkur um að færa þig framar. Við getum ekki gert það. Sjá Bólusetningaröðin.

Ungmenni fædd  2003, 2004 og 2005 mega ekki fá Janssen bóluefnið vegna aldurs. Þau hafa fengið boð í Pfizer.

Allt AstraZeneca bóluefni sem berst er notað til að gefa seinni skammtinn. Þau sem fengu boð í fyrri skammt af AstraZeneca sem þau gátu ekki nýtt sér fá boð í annað efni.

Fyrirkomulag á bólusetningastað 

Allir eru beðnir um að mæta með skilríki og við minnum á að grímuskylda er á bólusetningastað. Bólusett er í axlarvöðva og í almennu rými. Gott er að vera í stuttermabol innst klæða.  Allir þurfa að bíða í um 15 mínútur eftir að bólusetning er gefin.

Spurningar  

Ef þú ert með spurningar varðandi fyrirkomulag bendum við á Algengar spurningar um fyrirkomulag bólusetninga

Ef þú hefur spurningar varðandi bólusetningar og heilsufar bendum við á netspjallið á heilsuvera.is.    

Við bendum líka á ítarlegar upplýsingar varðandi bólusetningar, bóluefnin og aukaverkanir á covid.is/bolusetningar

Hafi fólk bráðaofnæmi við stungulyfjum, eða af óþekktum toga, er ekki ráðlegt að bólusetja það. 

Afþakka bólusetningar 

Ef þú vilt hafna bólusetningu alfarið óháð bóluefni, sendir þú nafn þitt og kennitölu á bolusetning@heilsugaeslan.is. Þar er engum spurningum svarað. Hugsanlega fá einhverjir sem hafnað hafa bólusetningu alfarið boð í bólusetningu en þá sleppir viðkomandi bara því að mæta og þarf ekki að láta vita.