Dagskrá bólusetninga - Vika 24

Mynd af frétt Dagskrá bólusetninga - Vika 24
11.06.2021

Í viku 24 er búið að skipuleggja þessar bólusetningar í Laugardalshöll. Fréttin verður uppfærð með nánari upplýsingum eftir því sem skipulag skýrist. (síðast uppfært 15. júní kl. 13:20).

Við bendum á Algengar spurningar um fyrirkomulag bólusetninga hér á vefnum. Leitið svara þar áður en þið hafið samband við heilsugæsluna. Mikið álag er á símkerfum.

  • Mánudaginn 14. júní er Janssen bólusetning. Þá er haldið áfram með handahófs aldurshópa. Karlar 1981, 1994, 2001, 2002 og konur 1976, 1979, 1989, 1993, 1997. SMS boð hafa verið send til þeirra sem býðst bólusetning þennan dag. Bólusett er kl. 9-14. Samdægursboð til kvenna 1989 og karla 1991.
    Eftir kl.14 geta þau komið sem eiga eldra boð í Janssen bóluefnið, meðan birgðir endast.
  • Þriðjudaginn 15. júní er Pfizer bólusetning. Þá er seinni bólusetning og haldið áfram með handahófs aldurshópa. Karlar 1996, konur 1992 og 2001 og öll 2003 og 2004. Bólusett er kl. 9-14. 
    Eftir kl.14 geta þau komið sem eiga eldra boð í Pfizer bóluefnið, meðan birgðir endast. Samdægursboð til kvenna 1987 og karla 1989.
  • Miðvikudaginn 16. júní er Moderna bólusetning. Þá er seinni bólusetning og haldið áfram með handahófs aldurshópa. Karlar 1982. Bólusett er kl. 9-12. 
    Eftir kl.12 geta þau komið sem eiga eldra boð í Moderna bóluefnið, meðan birgðir endast.

Bólusetning er í boði þessa viku fyrir:

  • þau sem fá SMS boð um að mæta þessa daga
  • þau sem eru með íslenska kennitölu og tilheyra árgangshópum sem sem fá boð þessa viku.

Einnig geta þau sem komust ekki í bólusetningu þegar þau/þeirra hópur fékk boð mætt eftir ákveðinn tíma, sjá dagskrána, Þá er bólusett meðan birgðir endast.

  • þau sem eru fædd 1975 eða fyrr.
  • þau sem tilheyra árgangshóp sem búið er að draga út.
  • þau sem hafa fengið boð sem þau hafa ekki nýtt sér. 

Þau sem fá boð í Janssen geta ekki valið annað bóluefni núna en seint í sumar verða bólusetningardagar þar sem það er hægt. Það er ekki hægt að mæta í annað bóluefni en þú fékkst boð í.

Þau sem fá boð en komast ekki, geta mætt næst þegar bóluefnið er í boði. Ekki biðja okkur um að færa þig framar. Við getum ekki gert það. Sjá Bólusetningaröðin.

Ungmenni fædd  2003 og 2004 mega ekki fá Janssen bóluefnið vegna aldurs. Þau hafa fengið boð í Pfizer.

Allt AstraZeneca bóluefni sem berst er notað til að gefa seinni skammtinn. Þau sem fengu boð í fyrri skammt af AstraZeneca sem þau gátu ekki nýtt sér fá boð í annað efni.

AstraZeneca verður notað aðra hverja viku í sumar og verður í næstu viku (vika 25). Fyrirkomulag verður kynnt fljótlega.

Fyrirkomulag á bólusetningastað 

Allir eru beðnir um að mæta með skilríki og við minnum á að grímuskylda er á bólusetningastað. Bólusett er í axlarvöðva og í almennu rými. Gott er að vera í stuttermabol innst klæða.  Allir þurfa að bíða í um 15 mínútur eftir að bólusetning er gefin.

Spurningar  

Ef þú ert með spurningar varðandi fyrirkomulag bendum við á Algengar spurningar um fyrirkomulag bólusetninga

Ef þú hefur spurningar varðandi bólusetningar og heilsufar bendum við á netspjallið á heilsuvera.is.    

Við bendum líka á ítarlegar upplýsingar varðandi bólusetningar, bóluefnin og aukaverkanir á covid.is/bolusetningar

Hafi fólk bráðaofnæmi við stungulyfjum, eða af óþekktum toga, er ekki ráðlegt að bólusetja það. 

Afþakka bólusetningar 

Ef þú vilt hafna bólusetningu alfarið óháð bóluefni, sendir þú nafn þitt og kennitölu á bolusetning@heilsugaeslan.is. Þar er engum spurningum svarað. Hugsanlega fá einhverjir sem hafnað hafa bólusetningu alfarið boð í bólusetningu en þá sleppir viðkomandi bara því að mæta og þarf ekki að láta vita.