Bólusetningaröðin

Mynd af frétt Bólusetningaröðin
04.06.2021

Búið er að draga úr bólusetningapottinum og röðin verður svona í sumar. Skipting árganga á vikur er með fyrirvara um að nægt bóluefni sé til staðar og að það henti viðkomandi aldri.

Ekki er hægt að láta færa sig framar. Það er ekki hægt að mæta í annað bóluefni en þú fékkst boð í og við getum ekki breytt boðum. Vinsamlega biðjið okkur ekki um þetta.

  • Ef þú færð boð en kemst ekki getur þú komið næst þegar er verið að nota sama bóluefni og þú fékkst boð í. Strikamerkið gildir áfram en mæta skal með eldra boð eftir ákveðinn tíma á bólusetningadegi, sjá dagskrá.
  • Ef þú tilheyrir þessum hópum en fékkst ekki boð, er það oft vegna þess að það er ekkert símanúmer skráð. Ef þú ert með íslenska kennitölu getur þú mætt með þínum hóp eða síðar í efnið sem þinn hópur fékk.
  • Þau sem eru með kynhlutlausa skráningu geta valið hvorum hluta síns árgangs þau fylgja burtséð frá boðun.
  • Ekki er byrjað að bólusetja þau sem hafa fengið COVID-19.

Leitið svara hér áður en þið hafið samband við heilsugæsluna. Mikið álag er á símkerfum.
Sjá einnig: Algengar spurningar um fyrirkomulag bólusetninga og Dagskrá bólusetninga - Vika 25

Þau sem eru með eldra boð geta mætt eftir ákveðinn tíma á bólusetningadegi, sjá dagskrá, og þá er bólusett meðan birgðir endast.

  • Öll fædd 1975 og fyrr geta komið á bólusetningadegi að eigin vali, nema AstraZeneca.
  • Þau sem eru fædd síðar geta komið í bólusetningu ef búið er að boða þeirra árgangshóp.
    Þau sem tilheyra hópum sem búið er að boða geta komið í bólusetningu þegar verið er að nota efnið sem þeirra hópur fékk úthlutað.

Hér er yfirlit yfir hvaða bóluefni hver hópur fær:

 Ár    Karlar    Konur  
 1976  Janssen  Janssen
 1977  Janssen  Janssen
 1978  Pfizer  Pfizer
 1979  Pfizer  Janssen
 1980  Pfizer  Janssen
 1981  Janssen  Janssen
 1982  Moderna  Pfizer
 1983  Pfizer  Pfizer
 1984  Janssen  Pfizer
 1985  Janssen  Janssen
 1986  Janssen  Pfizer
 1987  Pfizer  Pfizer
 1988  Janssen  Janssen
 1989  Pfizer  Janssen
 1990  Janssen  Janssen
 1991  Janssen  Janssen
 1992  Pfizer  Pfizer
 1993  Pfizer  Janssen
 1994  Janssen  Pfizer
 1995  Janssen  Janssen
 1996  Pfizer  Pfizer
 1997  Janssen  Janssen
 1998  Janssen  Pfizer
 1999  Pfizer  Janssen
 2000  Janssen  Janssen
 2001  Janssen Pfizer (leiðrétt)
 2002  Janssen  Janssen
 2003  Pfizer  Pfizer
 2004  Pfizer  Pfizer
 2005  Pfizer  Pfizer
 

Þessi voru boðuð í viku 23 - 7.  til 11. júní

Fyrstu 8 hóparnir fengu Pfizer, hinir fengu Janssen nema karlar 2003 og konur 2004 sem fá Pfizer í viku 24.

 Karlar    Konur 
 1979   1984 
 1993   1978 
 1992   1998 
 1983   1986 
 1984   2000 
 2003   1981 
 1977   1980 
 1997   2004
 1985   1988 


Þessi hafa verið boðuð í viku 24 - 14. til 18. júní 

Fyrstu 7 hóparnir fengu Janssen fimmtudaginn 10 júní, nema konur 2001 Pfizer 

Næstu 8 hópar fengu Janssen boð mánudaginn 14. júní.

Síðustu 2 hóparnir fengu boð í Pfizer þriðjudaginn 15. júní.

Þau sem eru fædd 2003 og 2004 fengu boð í Pfizer 15. júní vegna aldurs. 

Karlar   Konur
 1976   1977 
 2000   2001 
 1988   2002 
 1986   1993 
 1994   1976 
 2002   1979 
 1981   1997 
 2001  2003 
 1996   1992 


Þessi hafa verið boðuð í  viku  25 - 21. til 25. júní

Búið var að boða karla 1982 í Moderna 16. júní og karla 2004 í Pfizer 15. júní.  Pfizer fá  konur 1987, 1994, karlar  1989, 1980 og allir 2005. Hinir fár Janssen.

Sjá: Dagskrá bólusetninga - Vika 25

Karlar   Konur 
 2005  2005 
 1982    1989 
 1991  1987 
 1989  1994 
 1980   1990 
 1998   1995 
 2004   1999 
 1995   1991 
 1990   1985 


Frétt útgefin 4. júní, síðast uppfærð 16. júní.