Í viku 20 er er búið að skipuleggja þessar bólusetningar í Laugardalshöll:
- Mánudaginn 17. maí verður Moderna bólusetning.
Þá er seinni bólusetning og bólusetning og bólusetning kvenna sem eru yngri en 55 ára og eru í áhættuhópum. SMS boð verða send til þeirra sem býðst bólusetning þennan dag. Bólusett er 9:00-14:00 - Þriðjudaginn 18. maí verður Pfizer bólusetning.
Þá er seinni bólusetning og bólusetning kvenna sem eru yngri en 55 ára og eru í áhættuhópum. SMS boð verða send til þeirra sem býðst bólusetning þennan dag. Bólusett er 9:00-14:00. - Fimmtudaginn 20. maí verður Janssen bólusetning.
Meðal annars bólusettir ákveðnir jaðarhópar, flugmenn og skipaáhafnir. Haldið verður áfram með starfsmenn grunn- og leikskóla.
SMS boð verða send til þeirra sem býðst bólusetning þennan dag. Bólusett er 12:00-14:00.
Ekki eru staðfestir fleiri bólusetningardagar í þessari viku. Við bendum á bólusetningardagatalið varðandi vísbendingar um framhaldið.
Ekki verður bólusett með AstraZeneca á höfuðborgarsvæðinu í þessari viku og ekki er staðfest hvenær það er næst.
Fyrirkomulag á bólusetningastað
Allir eru beðnir um að mæta með skilríki og við minnum á grímuskyldu. Bólusett er í axlarvöðva og í almennu rými. Gott er að vera í stuttermabol innst klæða. Allir þurfa að bíða í um 15 mínútur eftir að bólusetning er gefin.
Spurningar
Ef þú ert með spurningar varðandi fyrirkomulag bendum við á Algengar spurningar um fyrirkomulag bólusetninga
Ef þú hefur spurningar varðandi bólusetningar og heilsufar bendum við á netspjallið á heilsuvera.is.
Við bendum líka á ítarlegar upplýsingar varðandi bólusetningar, bóluefnin og aukaverkanir á covid.is/bolusetningar
Afþakka bólusetningar
Ef þú vilt hafna bólusetningu alfarið óháð bóluefni, sendir þú nafn þitt og kennitölu á bolusetning@heilsugaeslan.is. Þar er engum spurningum svarað.
Hafi fólk bráðaofnæmi við stungulyfjum, eða af óþekktum toga, er ekki ráðlegt að bólusetja það.
Frétt uppfærð 18. maí.