Í viku 16 er er búið að skipuleggja þessar bólusetningar í Laugardalshöll:
- Þriðjudaginn 20. apríl verður Pfizer bólusetning fyrir fólk með undirliggjandi sjúkdóma. Byrjað verður á alvarlegustu sjúkdómunum. SMS boð með tímasetningu verður sent á alla sem býðst bólusetning þennan dag.
- Miðvikudaginn 21. apríl verður Moderna bólusetning fyrir fólk með undirliggjandi sjúkdóma. Byrjað verður á alvarlegustu sjúkdómunum. SMS boð með tímasetningu verður sent á alla sem býðst bólusetning þennan dag.
Á næstu vikum verður haldið áfram að bólusetja einstaklinga í hópi þeirra sem eru með undirliggjandi sjúkdóma. Þetta er stór hópur eða um 30.000 manns. Sjá nánar á vef Embættis landlæknis: Einstaklingar með undirliggjandi langvinna sjúkdóma og eru í sérstökum áhættuhópi skv. reglugerð um COVID-19 bólusetningar
Ekki eru staðfestir fleiri bólusetningardagar í þessari viku. Þeir birtast hér um leið og þeir eru ákveðnir. Við bendum á bólusetningardagatalið varðandi vísbendingar um framhaldið
Fyrirkomulag á bólusetningastað
Allir eru beðnir um að mæta með skilríki og við minnum á grímuskyldu. Bólusett er í axlarvöðva og í almennu rými. Því biðjum við fólk um að koma klætt þannig að auðvelt sé að ná í stungustaðinn. Gott er að vera í stuttermabol innst klæða. Allir þurfa að bíða í 15 mínútur eftir að bólusetning er gefin.
Spurningar
Ef þú hefur spurningar varðandi bólusetningar og heilsufar bendum við á netspjallið á heilsuvera.is.
Við bendum líka á ítarlegar upplýsingar varðandi bólusetningar, bóluefnin og aukaverkanir á covid.is/bolusetningar
Afþakka bólusetningar
Ef þú vilt hafna bólusetningu alfarið óháð bóluefni, sendir þú nafn þitt og kennitölu á bolusetning@heilsugaeslan.is Þar er engum spurningum svarað.
Hafi fólk bráðaofnæmi við stungulyfjum, eða af óþekktum toga, er ekki ráðlegt að bólusetja það.