Í viku 15 er er búið að skipuleggja þessar bólusetningar:
- Þriðjudaginn 13. apríl verður Pfizer bólusetning í Laugardalshöll fyrir heilbrigðisstarfsfólk utan stofnana. Boð verða send með SMS. Boðað er eftir aldursröð þar sem byrjað er á þeim elstu í hópnum. Aðrir í hópnum verða boðaðir í aldursröð næstu vikur.
- Fimmtudaginn 15. apríl verður AstraZeneca bólusetning á Suðurlandsbraut 34 fyrir þau sem fædd eru 1951 eða fyrr. Opið hús frá kl. 11:30 til 14:00.
Ef fólk ákveður að þiggja ekki AstraZeneca bóluefnið núna þarf ekki að tilkynna okkur, heldur ráðlagt að bíða þar til mál skýrast. Nánar: Um áframhaldandi notkun Astra Zeneca COVID-19 bóluefnis (Vaxzevria) á Íslandi
Ekki eru staðfestir fleiri bólusetningardagar í þessari viku. Þeir birtast hér um leið og þeir eru ákveðnir.
Við bendum á bólusetningardagatalið varðandi vísbendingar um framhaldið
Fyrirkomulag á bólusetningastað
Allir eru beðnir um að mæta með skilríki og við minnum á grímuskyldu. Bólusett er í axlarvöðva og í almennu rými. Því biðjum við fólk um að koma klætt þannig að auðvelt sé að ná í stungustaðinn. Gott er að vera í stuttermabol innst klæða. Allir þurfa að bíða í 15 mínútur eftir að bólusetning er gefin.
Spurningar
Ef þú hefur spurningar varðandi bólusetningar og heilsufar bendum við á netspjallið á heilsuvera.is.
Við bendum líka á ítarlegar upplýsingar varðandi bólusetningar, bóluefnin og aukaverkanir á covid.is/bolusetningar
Afþakka bólusetningar
Ef þú vilt hafna bólusetningu alfarið óháð bóluefni, sendir þú nafn þitt og kennitölu á bolusetning@heilsugaeslan.is Þar er engum spurningum svarað.
Hafi fólk bráðaofnæmi við stungulyfjum, eða af óþekktum toga, er ekki ráðlegt að bólusetja það.