Seinni bólusetning í Laugardalshöll 30. mars

Mynd af frétt Seinni bólusetning í Laugardalshöll 30. mars
29.03.2021

Nú er komið að seinni Pfizer bólusetningu fyrir þau sem fengu fyrri bólusetninguna fyrir 10. mars. Þetta er fólk fætt 40, 41 og 42.

Bólusett verður í Laugardalshöll þriðjudaginn 30. mars frá kl. 9:00 til 14:00. 

Boð um bólusetninguna hafa verið send með SMS skilaboðum. Fólk er beðið um að fylgja tímasetningu sem þar kemur fram.  

Vegna þess að ekki er til nóg bóluefni fengu ekki allir sem bólusettir voru 9. mars SMS boð um að mæta þennan dag. Þau fá boð í bólusetningu strax eftir páska.

Fyrirkomulag

Allir eru beðnir um að mæta með skilríki og við minnum á grímuskyldu.

Bólusett er í axlarvöðva og í almennu rými. Því biðjum við fólk um að koma klætt þannig að auðvelt sé að ná í stungustaðinn. Gott er að vera í stuttermabol innst klæða. 

Allir þurfa að bíða í 15 mínútur eftir að bólusetning er gefin. 

Bólusetning afþökkuð

Hafi fólk bráðaofnæmi við stungulyfjum, eða af óþekktum toga, er ekki ráðlegt að bólusetja það. Þeir sem ekki þiggja bólusetningu eru beðnir um að láta vita á bolusetning@heilsugaeslan.is eða i síma 513-5000. Þetta netfang er eingöngu til að afþakka bólusetningu. Þar er ekki svarað spurningum.

Spurningar og nánari upplýsingar

Ef þú hefur spurningar varðandi bólusetningar og heilsufar bendum við á netspjallið á www.heilsuvera.is

 

Fréttin var uppfærð 30. mars