Seinni COVID-19 bólusetning fyrir 90 ára og eldri

Mynd af frétt Seinni COVID-19 bólusetning fyrir 90 ára og eldri
19.02.2021

Seinni bólusetning fyrir þau sem sem fengu fyrri bólusetninguna 2. febrúar

Þriðjudaginn 23. febrúar mun heilsugæslan bjóða öllum íbúum á höfuðborgarsvæðinu 90 ára og eldri, sem voru bólusettir 2. febrúar við COVID-19  í bólusetningu nr. 2 á Suðurlandsbraut 34.  

Boð um bólusetninguna verða send með SMS skilaboðum og fólk er beðið um að fylgja tímasetningu sem þar kemur fram. 

Þau sem voru bólusett 2. febrúar en hafa ekki fengið SMS skilaboð geta komið á Suðurlandsbraut 34, milli kl. 9:00 og 15:00 sama dag og fengið bólusetningu. 

Fyrri bólusetning fyrir þau sem misstu af bólusetningu 2. febrúar

Þau sem eru 90 ára og eldri þ.e. fædd 1931 eða fyrr og misstu af bólusetningunni 2. febrúar eru einnig velkomin nú þriðjudaginn 23. febrúar í bólusetningu nr. 1. 

Boð um bólusetninguna verða send með SMS skilaboðum og fólk er beðið um að fylgja tímasetningu sem þar kemur fram. 

Þeir sem eru á þessum aldri en hafa ekki fengið SMS skilaboð geta komið á Suðurlandsbraut 34, milli kl. 9:00 og 15:00 sama dag og fengið bólusetningu. 

Fyrirkomulag

Allir eru beðnir um að mæta með skilríki og við minnum á grímuskyldu.

Bólusett er í axlarvöðva og í almennu rými. Því biðjum við fólk um að koma klætt þannig að auðvelt sé að ná í stungustaðinn. Gott er að vera í stuttermabol innst klæða. 

Allir þurfa að bíða í 15 mínútur eftir að bólusetning er gefin. 

Hafi fólk bráðaofnæmi við stungulyfjum, eða af óþekktum toga, er ekki ráðlegt að bólusetja það. Þeir sem ekki þiggja bólusetningu eru beðnir um að láta vita á bolusetning@heilsugaeslan.is eða i síma 513-5000.