Það er búið að opna aftur fyrir vefbókanir inn á mínum síðum á www.heilsuvera.is. Vegna COVID-19 þurfti tímabundið að loka þessum möguleika til að hafa meiri stjórn á komum inn á stöðvarnar.
Nú geta allir aftur bókað tíma hjá lækni á heilsugæslunni sinni í heilsuveru. Við biðjum þó fólk með flensulík einkenni (hita, beinverki, hósta, kvef) að fara fyrst í COVID sýnatöku áður en það pantar tíma til að útiloka COVID sýkingu.
Einnig er nú hægt að bóka samdægurstíma í vefbókun frá kl. 8:00 að morgni. Áður þurfti að hringja til bóka þessa tíma.
Þetta er í takt við okkar markmið um að tryggja að aðgengi að þjónustu okkar sé sem best.
Starfsmenn heilsugæslunnar þakka þolinmæði og tillitssemi á undanförnum mánuðum.
Við minnum áfram á mikilvægi sóttvarna á starfsstöðvum okkar til að tryggja órofna þjónustu.