Allir fá boð um bólusetningu þegar kemur að þeirra forgangshóp

Mynd af frétt Allir fá boð um bólusetningu þegar kemur að þeirra forgangshóp
10.12.2020

Ekki er ljóst hvenær dreifing bóluefna vegna COVID-19 hefst. Það er því ótímabært að tala um hvenær bólusetning hefst hér á landi. Vonir eru bundnar við að hún geti hafist á fyrri hluta næsta árs.

Það er ekki hægt að panta í bólusetningu. Allir munu fá boð í bólusetningu þegar kemur að þeim.

Búið er birta reglugerð um forgangsröðun við bólusetningu vegna COVID-19
Tilgangur reglugerðarinnar er að ákveða forgangsröðunina á grundvelli málefnalegra sjónarmiða.

Sóttvarnalæknir ber ábyrgð á skipulagningu og samræmingu bólusetningar, þar á meðal röðun í forgangshópa. 

Heilsugæslustöðvar sjá um framkvæmd bólusetninganna en geta ekki sett einstaklinga í forgangshóp. 
 

Nánari upplýsingar eru á vefnum covid.is

Vinsamlega hringið ekki í heilsugæslustöðvar vegna þessa. Enginn þarf að óttast að verða útundan þegar að bólusetningunni kemur.