Streitustjórnun og meiri lífsgæði

Mynd af frétt Streitustjórnun og meiri lífsgæði
19.11.2020

Streita er eitthvað sem allir kannast við að hafa upplifað og nú á tímum Covid-19 eru margir að upplifa streitu í mun meira mæli en áður. Streita er viðbragð líkamans við álagi og gegnir því hlutverki að undirbúa okkur fyrir komandi átök og getur hún því vissulega verið gagnleg en hún getur einnig orðið hamlandi. Þegar einstaklingur upplifir streitu til lengri tíma getur það aukið líkur á bæði líkamlegri og andlegri vanlíðan. Nú þegar álag í daglegu lífi hefur aukist töluvert er mikilvægt að huga að því sem við getum gert til að takmarka streitu. Hér á eftir koma nokkur ráð til þess að draga úr streitu í daglegu lífi.

Skipulag veitir öryggi

Rútína og skipulag veita öryggi, bæði fyrir börn og fullorðna. Mikilvægt er að hafa í huga hvað skiptir þig máli að hafa í föstum skorðum, þetta getur verið eitthvað sem er nú þegar komið í ákveðna rútínu eða jafnvel eitthvað sem hefur verið að valda streitu og væri gagnlegt að koma rútínu á. Mörgum finnst gott að hafa til dæmis ákveðna daga fyrir heimilisþrif, matarinnkaup og hreyfingu. Einnig hentar oft vel að hafa ákveðinn matseðil fyrir vikuna, skipuleggja gæðastundir með fjölskyldunni auk þess að gæta að rútínu á svefn- og vökumynstri. Ef fólk er mikið heima fyrir skiptir höfuðmáli að fara út, til dæmis í göngutúr einu sinni á dag, í minnst 30 mínútur.

Taktu frá tíma

Nú sem aldrei fyrr er gríðarlega mikilvægt að gleyma ekki að hugsa vel um sjálfan sig. Taktu frá tíma á hverjum degi fyrir þig og nýttu í eitthvað sem veitir þér vellíðan og gerir þér gott. Hér má fara í slakandi bað, fara í göngutúr eða stunda aðra líkamsrækt, mála, hugleiða eða jafnvel hlusta á hljóðbók.
Mikilvægt er að huga að heilbrigðu mataræði og reglulegum máltíðum, fara á svipuðum tíma í háttinn og reyna að ná 7-8 klst. svefni á nóttu. Einnig getur það reynst vel fyrir marga að draga úr notkun fréttamiðla og samfélagsmiðla og reyna að lesa ekki né hlusta mikið á fréttir yfir daginn, ágætt er að miða við einn fréttatíma á dag.

Vinnudagur í skýran ramma

Skildu vinnuna eftir í vinnunni þegar unnið er heima eins og hefur færst í vöxt. Er mikilvægt að setja vinnudeginum skýran ramma. Sem dæmi að vakna á sama tíma, klæða sig í vinnufötin, reyna að afmarka vinnurýmið og taka sér matar- og kaffitíma í öðru rými, ásamt því að viðhalda ánægjulegum samskiptum við samstarfsfólk. Mörgum hættir til að halda áfram að hugsa um vinnuna eftir að vinnudegi er lokið og eru þá í aukinni hættu á hamlandi streitu og neikvæðum áhrifum hennar.
Mikilvægt er að reyna að finna leiðir til að hugsa um það sem við erum þakklát fyrir og gefur lífinu gildi. Fólk vill oft ætla sér of mikið og í nútímasamfélagi eru kröfurnar ansi miklar. Það er hins vegar í lagi að vera ekki 100% á öllum sviðum. Drögum úr kröfunum til sjálfra okkar og njótum líðandi stundar.

Leita ráða við hamlandi streitu

Streita getur dregið úr lífsgæðum. Þegar þetta ástand er orðið hamlandi er því mikilvægt að leita aðstoðar. Til dæmis er hægt að hringja og ráðfæra sig við hjúkrunarfræðing á heilsugæslustöð eða á Mínum síðum á heilsuvera.is til að óska eftir aðstoð um hvernig bæta megi lífið.

Höfundar eru Hildur Ósk Gunnlaugsdóttir, sálfræðingur, Sigrún Skúladóttir hjúkrunarfræðingur og Ólöf Birna Björnsdóttir fjölskyldufræðingur, Geðheilsuteymi HH suður.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu.