Ef barn er sett í sóttkví þarf annað foreldrið að taka að sér að vera með barninu í sóttkví.
Foreldrar mega ekki skipta með sér sóttkví því þá eru fleiri útsetttir fyrir smiti.
Skipta þarf upp heimilinu eins og kostur er og gæta að smitvörnum.
Á 5. degi fer barnið svo í sýnatöku en ekki foreldrið. Ef annað eða bæði fá einkenni innan þessa 5 daga, þurfa þau að bóka sig í einkennasýnatöku, mæta ekki veik í sóttkvíarsýnatökuna.
Foreldri getur fengið vottorð vegna sóttkvíar barns fyrir vinnuveitenda. Hægt er að nálgast vottorðið á svæði barnsins á Heilsuveru (velur nafn barnsins undir nafni þess sem skráir sig inn). Ef forsjáraðili getur ekki nálgast vottorðið á Heilsuveru þarf að senda beiðni um vottorð á netfangið mottaka@landlaeknir.is
Nánari leiðbeiningar um sóttkví barna eru á vefnum Covid.is
(Fréttin var síðast uppfærð 25. janúar 2022)