HH hlýtur jafnlaunavottun

Mynd af frétt HH hlýtur jafnlaunavottun
29.04.2020
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins (HH) hefur hlotið  jafnlaunavottun frá vottunarstofunni BSI. Jafnlaunagreining sýndi að ekki er um marktækan kynbundin launamun að ræða.

Jafnlaunavottun sem stofnunin fékk 17. febrúar sl. er staðfesting þess að jafnlaunakerfi HH samræmist kröfum jaunalaunastaðalsins  ÍST 85:2012.

Megintilgangur jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnustöðum. Með þessu á að tryggja jafnan rétt, jöfn laun og sömu réttindi og kjör fyrir sömu eða jafn verðmæt störf óháð kyni.

Jafnlaunavottun var lögfest í júní 2017 með breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Jafnframt var sett reglugerð um vottun á jafnlaunakerfum fyrirtækja og stofnana.

Með jafnlaunavottuninni hefur HH öðlast heimild Jafnréttisstofu að nota jafnlaunamerkið til næstu þriggja ára. Jafnlaunamerkið er skráð vörumerki, og er því ætlað að vera gæðastimpill og hluti af ímynd og orðspori fyrirtækja og stofnana. Merkið staðfestir að komið hafi verið upp ferli sem tryggir að málsmeðferð og ákvarðanir í launamálum feli ekki í sér kynbundna mismunun.