Mikilvægt er að sinna ung- og smábarnavernd þrátt fyrir yfirstandandi faraldur. Sérstaklega á þetta við um skoðanir þar sem verið er að bólusetja börnin.
Í samráði við sóttvarnalækni mælum við með eftirfarandi verklagi. Hafa þarf í huga að fyrirkomulag ung- og smábarnaverndar getur verið mismunandi milli heilsugæslustöðva miðað við aðstæður á hverri stöð.
- Einungis eitt foreldri mæti með barnið í skoðanir í ung- og smábarnavernd til að minnka smithættu.
- Hjúkrunarfræðingur fer áfram í heimavitjanir til fjölskyldu. Ef hægt er þá er farið í a.m.k. eina heimavitjun og hjúkrunarfræðingur er síðan í reglulegu sambandi við foreldra í gegnum síma.
- Barn komi í 6 vikna skoðun á heilsugæslustöð og allar skoðanir þar sem barnið er bólusett.
- Símaviðtal hjúkrunarfræðings í stað skoðunar við 9 vikna aldur, 10 mánaða aldur og 2½ árs aldur, ef þarf sökum álags á stöðvunum. Barnið komi þó í skoðun á stöð ef talin er þörf á því eftir símtal.
- 9 vikna skoðun: Hjúkrunarfræðingur skimar fyrir þunglyndi og kvíða með EPDS og GAD-7 skimunarlistunum í gegnum síma, fær upplýsingar um brjóstagjöf, vöxt og þroska og veitir ráðgjöf í síma.
- 10 mánaða skoðun: Hjúkrunarfræðingur gerir þroskamat hjá barni í gegnum síma.
- 2 ½ árs skoðun: Hjúkrunarfræðingur leggur PEDS fyrir foreldra í gegnum síma, fær upplýsingar um hvernig gengur og veitir ráðgjöf. Æskilegt er þó að bjóða þessa skoðun síðar ef hægt er.
- Fresta má 4 ára skoðun eitthvað, en hafa í huga að í þessari skoðun er bæði bólusetning og sjónpróf og því mikilvægt að hún falli ekki niður.