Gríðarlegt álag hefur verið á síma- og vefþjónustu heilsugæslunnar. Mikið af fólki með flensulík einkenni er að óska eftir sýnatöku.
Nú er sú breyting á að lögð verður áhersla á þá sem eru í aukinni áhættu fyrir alvarlegar sýkingar. Einstaklingar í áhættuhópi sem eru með ≥ 38,5°C, beinverki og hósta eru í forgangi.
Ákvörðun um sýnatöku er því í höndum lækna og hjúkrunarfræðinga á heilsugæslustöðvunum. Sýnatökur verða áfram hjá fólki sem er með einkenni og kemur af áhættusvæðum eða hefur verið í nánum samskiptum við smitaðan einstakling.
Fólki í áhættuhópi sem er með öll þessi einkenni er bent á að hafa samband símleiðis við sína heilsugæslustöð.
Aðrir sem eru með einkenni en ekki alvarlega veikir er vinsamlega bent á að viðhafa góða smitgát og vera heima þar til einkennalaus, óþarfi að hafa samband við heilsugæsluna.