Opið fyrir tilvísanir í Geðheilsuteymi HH suður

Mynd af frétt Opið fyrir tilvísanir í Geðheilsuteymi HH suður
17.01.2020

Geðheilsuteymi HH suður er nýtt þverfaglegt teymi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) sem sinnir skjólstæðingum 18 ára og eldri með greindan geðsjúkdóm sem hafa þörf á þverfaglegri aðkomu fagfólks. Um er að ræða 2. stigs þjónustu þar sem vandi viðkomandi kallar á meira utanumhald og eftirfylgni en 1. stigs þjónusta getur veitt. Frábendingar í teymið eru virkur fíknivandi og þroskaraskanir.

Teymið sinnir Kópavogi, Hafnarfirði og Garðabæ og býður upp á sömu þjónustu og teymin tvö sem fyrir eru, Geðheilsuteymi HH austur og Geðheilsuteymi HH vestur, sem skipta með sér Reykjavík.

Teymið er ekki flutt í framtíðarhúsnæði en það stendur til bóta á næstu mánuðum. Framtíðarstaðsetning verður í Bæjarlind 1-3 í Kópavogi en teymið er tímabundið til húsa í Álfabakka 16, í húsnæði skrifstofu HH í Mjódd. Í millitíðinni taka starfsmenn teymisins viðtöl á heilsugæslustöðvum í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. 

Vegna húsnæðisskorts þarf að forgangsraða beiðnum inn í teymið fyrst um sinn og vonandi verður því sýndur skilningur. 

Byrjað var að taka á móti tilvísunum 13.janúar. Tekið er á móti tilvísunum frá fagfólki í heilbrigðis og velferðarþjónustu. 

Tilvísunarblað er hér á vefnum á síðu teymisins, einnig er hægt að sækja rafrænt um í Sögunni.

Ef spurningar vakna varðandi tilvísanir og vafaatriði þá er velkomið að hafa samband við Írisi Dögg Harðardóttur teymisstjóra, í síma teymisins 513-6381 eða með tölvupósti.