Gleðileg jól alla leið

Mynd af frétt Gleðileg jól alla leið
19.12.2019

Jólin eru handan við hornið. Desember einkennist hjá mörgum af skemmtilegri tilbreytingu í mat og drykk, samkomum á vinnustöðum og í fjölskyldum. Svo koma jólin og þá er allt það besta dregið fram í mat og drykk og samkomur sem aldrei fyrr. En það má ofgera öllu og meiningin er jú að okkur verði gott af þessu öllu saman ekki satt? Enginn vill enda á bráðamóttökunni mitt í öllum hátíðahöldunum. En því miður hefur borið á því að sú verði raunin af ýmsum ástæðum.

Jólamaturinn

Maturinn sem er á borðum er oft þyngri en við erum vön. Meira af söltum og reyktum mat sem getur valdið þeim sem þjást af hjarta- og lungnasjúkdómum vanlíðan, með þeim afleiðingum að leita þarf aðstoðar heilbrigðisstarfsfólks. Þótt hefðir séu ágætar þá er víst að jólin verða miklu ánægjulegri með mat sem allir þola og líður vel af.

Hátíðarmatur getur vel verið hollur og góður og alger óþarfi að fólk sitji uppi með stein í maganum eftir hátíðirnar. Hver og einn getur líka notað þá aðferð að borða hægt og njóta matarins frekar en að sporðrenna sem mestu. Það er í góðu lagi að smakka á reyktum og söltum mat, en ekki gott að borða lítið annað.

Eldra fólk er gjarnan í mat hjá vinum og vandamönnum yfir hátíðarnar. Þeir sem bjóða heim ættu að huga að því að bjóða upp á mat sem öllum verður gott af. Það væri líka gott að þeir sem bjóða eldra fólki í mat yfir jólin hefðu samráð um matseðilinn svo gestirnir lendi ekki í því að borða hangikjöt eða hamborgarhrygg þrjá daga í röð.

Jólasamveran

Jólin eru erfiður tími í mörgum fjölskyldum. Þá söknum við sárast þeirra sem við höfum misst. Gott getur verið að taka frá stund til þess að minnast þeirra sem farnir eru og gefa sér tækifæri til að syrgja en líka gleðjast yfir góðum minningum

Skipulag jólahátíðarinnar getur verið flókið í fósturfjölskyldum. Munum að tækifæri til góðra stunda með börnum og barnabörnum eru mörg. Ekki er nauðsynlegt að þær stundir séu allar um jól. Það er gott að hlusta á hvað börnin hafa að segja og skipuleggja hátíðina þannig að þau upplifi að þeir fullorðnu standi saman um að gera hana sem ánægjulegasta fyrir börnin.

Jólin í ár gefa vinnandi fólki marga frídaga sem tilvalið er að nýta til samveru með þeim sem okkur þykir vænt um. Sú samvera þarf ekki endilega að byggjast á því að borða yfir sig í sparifötunum. Við getum líka klætt okkur vel og notið útiveru saman. Lagt símana til hliðar og bara notið þess að leika okkur með börnunum. Það er líka upplagt að taka góðan göngutúr í nágrenninu, heimsækja sundlaugarnar, fara á skauta, skíði eða gefa sleðabrekkunni gaum allt eftir aðstæðum og áhugasviði hvers og eins.

Flestir óska þess að geta átt gleðileg jól og góða daga í kringum hátíðarnar. Það að hafa jólin áfengislaus eykur líkurnar á því að svo geti orðið hjá flestum. Í það minnsta ætti að stilla áfengisneyslu mjög í hóf um hátíðarnar. Njótum hátíðanna allsgáð.

Örugg um jólin

Yfir háveturinn má búast við allskonar veðri og færð og til að minnka líkur á óhöppum og slysum er æskilegt að gefa sér góðan tíma og fara frekar hægar yfir. Víða leynist hálka á gangstéttum og vegum og hálkuslys er nokkuð sem enginn vill í jólagjöf. Þeir sem ætla að ferðast landshorna á milli þurfa að fylgjast vel með verðurspám.

Ein af þeim jólahefðum sem margir hafa er að kveikja á kertum. Best er að kertin séu í kertastjökum sem ekki er íkveikjuhætta af og það er góð regla að láta kerti ekki loga í mannlausum herbergjum.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins óskar landsmönnum gleði og friðar á hátíð ljóssins og minnum á að vaktsíminn 1700 er opinn allan sólarhringinn. Heilsugæslustöðvar eru opnar á virkum dögum. Læknavaktin er opin yfir hátíðarnar og bráðaþjónustur um allt land. Sjá nánar um afgreiðslutíma á þjónustuvefsjá á heilsuvera.is

Margrét Héðinsdóttir, hjúkrunarfræðingur og vefstjóri Heilsuveru

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu